Ægir - 01.01.1938, Blaðsíða 20
12
Æ G I R
Tafla II. Síldarverksmiðjur í árslok 1937
og afköst þeirra í inálum á sólarhring.
1. Verksm. lif. Síldar- o» fiskimjölsverk-
smiöja Akraness ................. 700
2. — rikisins SRS, Sólbakka............. 1 M0
3. — lif. Kveldúlfur, Hesteyri.......... 1 300
4. — hf. Djúpavík, Djúpuvik............. 4 800
5. • rikisins SR30, Siglufirði.......... 2 770
6. — ríkisins SRN Siglufirði............ 2 770
7. — ríkisins SRP Siglufirði.............. 1740
8. Siglufj.kaupst. (Grána), Sigluf..... 400
9. — (Rauðka), Siglufirði............ 1 000
10. — hf. Kveldúlfur, Hjalteyri......... 4 800
11. hf. Sildaroliuverksm., Dagv.eyri .. 1100
12. hf. Ægir, Krossanesi................ 3000
13. — Sildarverksm.fél. á Húsavik....... 400
14. — ríkisins SRR, Raufarliöfn......... 1 400
15. lif. síldarverksm. Seyðisfjarðar ... 700
16. — hf. Fóðurmjölsverksmiðja Norðfj.
Neskaupstað ..................... 350
Mál samtals 28 320
Tafla III. Þátttaka í síldveiðinni
1936 og 1937 (herpinótaskip).
1937 1936
Tegund skipa C3 . £ Cu d ca *2L C3 . CQ d Cw ’S-
"c? C3 o Hæ Cw H CZ’Z Hw C3 o H^
Togarar 32 cc oc 4- 32 18 489 18
Línugufuskip . 30 561 30 30 577 30
Mótorskip 149 1728 105 126 1506 90
211 3173 167 174 2572 138
Jierpinótaveiðar, og' er það 34 skipum
fleira en 1935, en það ár hefir þátttakan
verið inest áður. í sumar voru notaðar
167 herpinætur við Veiðarnar, en 144
1935. Mismunurinn á skipverjatölunni á
þessum tveimur árum er um 500. Ef at-
huguð er tafla III, þá sézt glöggt mis-
munurinn á þátttökunni í síldveiðunum
1937 og 1936.
Síldveiðiskipin lögðu í fyrra lagi af
stað norður, og fór það fyrsta, mb.
„Garðar“ úr Vestmannaeyjum, 5. júní.
Þann 7. júní sáu fiskiskip síld vaða bæði
á Skagagrunni og út af Langanesi. Um
miðjan júní var mikil lierpinótaveiði á
Grímseyjarsundi og víðar, og fengu flest
skiji fullfermi, sem þá voru komin út.
Langmest var síldveiðin á tímabilinu frá
26. júni til 3. júli. Síld var þá að meiru
eða minna leyti á öllu svæðinu austan
frá Bakkafirði og vestur að ísafjarðar-
djúpi. Um þetta leyti og reyndar miklu
oftar um sumarið, urðu flestar sildar-
þrær verksmiðjanna vfirfullar, og urðu
skipin þá að bíða dögum saman eftir
losun. Hversu mikið tap hefir hlotizt
af því, að skipin urðu að vera frá veið-
um marga daga á vertíðinni, vegna ó-
nógra afkasta verksmiðj anna, er óger-
legt að áætla.
Veiðin hélzt út allan ágúst, og var oft
inikil i þeim mánuði. Viku af september
liættu flest skipin veiðum, og voru allar
verksmiðjurnar þá búnar að taka á móti
2158 þús. hl. af síld, og er það rúmlega
hehningi meira en árið áður.
Eins og tafla II ber með sér, eru alls
16 síldarverksmiðjur hér á landi, og eru
samanlögð meðalafköst þeirra allra 28320
mál á sólarhring. Afköst Rikisverksmiðj-
anna eru rúmlega þriðjungur af heildar-
afköstunum, eða 34,5%. Á árinu voru
reistar síldarverksmiðjur á Akranesi,
Hjaltevri, Húsavík og Seyðisfirði. Allar
þessar verksmiðjur tóku til starfa á ár-
inu, nema Húsavíkurverksmiðjan, se.m
ckki var fullgerð fvrr en seinast á sumr-
inu. Þessar 4 verksmiðjur, sem bætzt
hafa við á árinu, gera næstum % af
heildarafköstum verksmiðjanna, eða
24%. Rikisverksmiðjurnar unnu úr 39%
af bræðslusildinni, en hinar þrjár nýju
verksmiðjur úr 15%, og er Hjalteyrar-
verksmiðjan með megnið af því, eða
rúm 13% af heildaraflanum.
j