Ægir - 01.07.1951, Blaðsíða 36
184
Æ G I R
Frystihúsin á
Ishúsfélag ísfiráinga.
íshúsfélag ísfirðinga var fyrst stofnað
1908. Stofnendur voru margir ísfirðingar
og ýmsir Djúpmenn. Aðalmennirnir munu
hafa verið Árni Gíslason, Jón Auðunn
Jónsson og Ólafur Davíðsson fyrir liönd
Tangs-verzlunar.
Lét félagið þá reisa frystihús það, senx
enn stendur, að stofni til, en hefur verið
aukið og stækkað. Þetta var venjulegt ís-
hús eða klalca-frystihús. Hafði það í önd-
verðu mikil viðskipti, seldi beitu víðs veg'-
ar. Árið 1929 voru settar frystivélar í hús
þetta.
Skömmu eftir að íshúsfélag ísfirðinga
var stofnað, kej'pti Skúli Einarsson og ég
hygg Karl Olgeirsson með honum smíða-
hús, sem Valdimar heitinn Haraldsson
bátasmiður átli. Stóð það þétt við hús ís-
hússfélags Isfirðinga. Þessu húsi breyttu
þeir í íshús og nefndu Jökul.
Þegar Skúli Einarsson fluttizt úr bæn-
um, laust fyrir 1920, eignaðist Magnús Ól-
aísson prentsmiðjustjóri hlut hans. Var
Magnús síðan íshússtjóri í mörg ár, en
meðeigendur hans voru Elías J. Pálsson,
Jón heitinn Edvald og máske fleiri. Árið
1932 voru settar frystivélar í Jökul.
Árið 1915 stofnuðu þeir Axel Ketilsson,
Helgi Kelilsson og Magnús Thorberg íshús-
félag, sem nefnt var Gláma. Stórt steinhús
var reist efst i Fjarðarstræti. Var íshúsið
tekið lil notkunar 1916. Haí'ði Helgi Ketils-
son íshússtjórnina með höndum, og enn þá
er Helgi starfandi vélstjóri við íshúsfélag
ísfirðinga.
Árið 1936 voru sett hraðfrystitæki í hús
íshússfélags ísfirðinga. Jafnframt var svo
íshúsið Jökull sameinað því húsi, skilrúm-
in brotin að mestu eða öllu og húsununi
breytt eftir því sem þurfa þótti til hrað-
frystivinnslunnar.
Ishúsið Gláma geklc svo í félag þetta, og
þar með sameinuðust þessi þrjú frystihús
í Ishúsfélag ísfirðinga.
Var þá Glámu-húsið tekið til beitu-
geymslu eingöngu, en aðalhúsið til fisk-
flökunar og geymslu þeirra. Síðan var sett
upp kjötbúð í suðurenda Glámu-hússins,
og hefur verið notazt við frystirúm þarna
deilt um það í hænum, hvort rétt hafi verið
að selja skipið, sem orðið var gamalt og
þurfti gagngerðrar viðgerðar, og þó mest
síðar, er séð varð, að ófriðnum slotaði
ekki, og verð skipa fór hækkandi. En mik-
ið fé á þeirra tíma mælikvarða, færði
„Skutull" í bæinn þessi árin.
Síðan voru jafnan á döfinni fyrirætlanir
um að fá togara í bæinn í stað „Skutuls“.
Var svo stofnað hlutafélagið ísfirðingur,
sem lceypti einn nýsköpunartogarann. Ivom
hann hingað til ísafjarðar í byrjun maí
1948, og hóf þegar veiðar. Togarinn hlaut
nafnið „ísborg“. Hefur því skipi verið hald-
ið héðan úti siðan.
Nýskeð hefur verið undirritaður samn-
ingur við ríkisstjórnina um kaup á einuni
hinna nýjustu togara, sem í smíðum ei’ i
Englandi. Eignast h.f. ísfirðingur einnio
þann togara. Er áformað, að skip þetta
vcrði afhent í júní næstkomandi.
Stjórn h.f. ísfirðings skipa nú: Matthias
Bjarnason framkvæmdastjóri og Kjartan
Jóhannsson læknir, kosnir af hluthöfuin.
Ásberg Sigurðsson lögfræðingur, Hannibal
Valdimarsson alþm. og Haraldur Guð-
mundsson skipstjóri, kosnir af bæjarstjórn
Jsafjarðar.
Framkvæmdastjóri togarans er Ásberg
Sigurðsson. Ragnar Jóhannsson hefur ver-
ið skipstjóri á ísborg frá byrjun.
Kr. J-