Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.1951, Side 40

Ægir - 01.07.1951, Side 40
188 Æ G I R Nú mun gengislækkunin liafa gert þarna nokkurt strik í reikninginn (hafi kostnað- arverð Mariu ekki verið greitt í dönskum peningum áður en ísl. krónan var felld í í verði) og væri fróðlegt að vita, hversu margar isl. krónur eru komnar i „Maríu Júlíu“ nú. Ég hef líka heyrt, að frágangur á smíði skips þessa sé ekki til neinnar fyrirmynd- ar. Að minnsta kosti hefur „Maria Júlía“ þurft talsverðrar lagfæringar við. „Ég tel, þrátt fyrir allt“, segir Marselíus, „að skipasmíðaiðnaðurinn íslenzki geti á- vallt keppt við liinar erlendu skipasmíða- stöðvar, og því sé skylt að styðja í verki hinar íslenzku skipasmíðastöðvar.“ Eitlhvað á þessa leið fórust Marselíusi orð um skipasmíðaiðnaðinn. Um sjálfan sig og verk sin vildi Mar- selius sem minnst tala. Eru þau þó viður- kenningarverð. Það má teljast þrekvirki ekki lítið, að koma á fót og reka með dugn- aði slíkt fyrirtæki sem skipasmíðastöð M. Bernharðssonar h.f. er. Og menn geta líka sagt sér sjálfum, hversu miklu varðar fyrir hæ með fábreytta atvinnumöguleika, eins og ísafjörð, hvort 35—40 menn hafi þar stanzlausa atvinnu við skipasmíðar, eða að einungis 5—6 menn séu þar að verki. Fjóráungsþing fiskideilda Vestfjaráa verður haldið á ísafirði dagana 21.—22. október næstkomandi. Á þinginu verða eftirtalin mál tekin fyrir: 1. Reikningar fjórðungssam- bandsins. 2. Landhelgisgæzlan. 3. Fræðslumál sjómanna. 4. Slysatryggingar og sjó- mannatryggingin. 5. Vitamál. 6. Smærri hafnabætur. 7. Fjárhagsáætlun sambands- ins. 8. Kosning fjórðungsstjórnar. 9. Önnur mál. ísafirði, 8. sept. 1951. F jórðungsstjórnin. Skipabraut ísafjarðar 1923.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.