Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1951, Síða 43

Ægir - 01.07.1951, Síða 43
Æ G I R 191 Rœkjudósir úfijlllar með lög. Mest hefui’ verksmiðjan greitt í vinnu- lauix yfir árið 450 þxxsund krónur, en minnst 138 þxisund krónur, ég hygg síðast- Hðið ár. Eins og fyrr segir voru rækjuveiðibátar, senx lögðu upp hjá verksniiðjunni allt að sjö, þegar mest var um að vera á stríðs- árunum. Undanfaxúð hefur einn bátur, stundum tveir, veitt rækjur handa verk- sniiðjunni. Veiðitinxabilið má teljast allt nð 10 mánuðir, en uppihald langt af og til. Rækjan virðist alls ekki ganga til þurrðar, Jiótt vitanlega sé misjöfn veiði. Símon 01- sen, senx stundað hefur þessar veiðar meira °g niinna frá byrjun, segir nxér, að Skötu- íjörður og Mjóifjörður séu einkum góð •'íckjusvæði. — Rækjan komi ávallt aftur þangað, þótt þurrt kunni að virðast þar stutta stund. — Innri hluti ísafjarðardjúps °g Isafjörður er líka oftast örugg í þessu efni. Afkonxa rækjuveiðanna veltur nú á því, nð öruggur markaður fáist. —- Innlend lleyzla þessa fisknxetis er svo hverfandi Htil. sein eðlilegt er. Væri unnt að opna Danmörk, og ef takast mætti að selja rækjurnar í Englandi og Bandáríkjunum, væri liindrunum þessum xxr vegi rutt. — Geta xná þess, að nú síðustu vikurnar eru liorfur á því að senda megi rælcjur isaðar á brezkan markað, en ekki er þó fullkom- lega víst enn þá, hvernig sölu þeirra reiðir af. Annars er þessi verksxniðja nokkuð betur á vegi stödd en ýmsar aðrar, þar sem hún hefur soðið niður ýmsar fisk- tegundir, og síld með sæmilegum árangri. — Mætti því vænta þess, að verksmiðjan ætti eftir að færast í aukana næstu árin. Hxín hefur á undanförnum árum verið drjúgur atvinnuauki, einkum hafa lconur og unglingar notið þar drjúgrar vinnu, og aflað sér kærkonxinna tekna. Rækjuverksmiája Pólar-félagsins. Fyrir fáum árum bundust nokkrir menn á ísafirði samtökum um að koma á fót annarri smærri rækjuverksmiðju. — Aðal • frumkvöðull að stofnun þess var Ole G. Syre, sá er frumkvæði átli að rækjuveið- um hér. Méðal annarra stofnenda voru: Kjartan Jóliannsson læknir og Ragnar Bárðarson bygginganxeistari. Fyrirtæki þetta nefnist Pólar h.f.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.