Ægir

Árgangur

Ægir - 15.12.1971, Blaðsíða 29

Ægir - 15.12.1971, Blaðsíða 29
ÆGIR 403 endurbætur á skýrslusöfnun og úrvinnslu hjá Fiskifélaginu. Þá hefur það verið venja nokkur undanfarin ár að reyna að greiða útvegsmönnum upp í vænt- anlegar bætur strax, þegar starfsmenn sjóðsins hafa sannfærzt um bótaskyldu. Hefur þetta fyr- irkomulag auðveldað útvegsmönnum að standa við skuldbindingar sínar sbr. 13. gr. laganna. IV. Fylgiskjöl. Eins og áður er getið, ritaði nefndin mörgum aðilum bréf 11. janúar og 15. febrúar 1966, sem var ítrekað 17. nóvember 1966 og skýrði þeim frá því, að hún hefði hafizt handa um endurskoðun laganna um aflatryggingasjóð í samræmi við þingsályktunartill. frá árinu áður um það efni. í bréfinu óskaði nefndin eftir tillögum og ábend- ingum þessara aðila um hugsanlegar breytingar á lögunum. Eins og skýrt er frá í greinarg. varð eftirtekjan harla rýr um fjölda svara, þótt oft væri eftir leitað munnlega. Bárust svör frá aðeins fjórum aðilum. Voru þau gaumgæfilega athuguð af nefndinni og tekið tillit til þeirra, eftir því sem efni stóðu til. Eigi þykir tilefni hér til að gera grein fyrir ástæðum fyrir því, að sum atriði þótti ekki rétt að taka í lagafrumv. þetta, en sum þeirra gætu átt heima í reglugerð og enn önnur gætu orðið til hliðsjónar við framkvæmd gildandi laga og þeirra breytinga, sem hér eru gerðar till. um, ef að lögum verða. En að öðru leyti verður að skoða þau í ljósi gildandi laga og lagafrumvarps- ins og skýringa með því. Bréf þessi fara hér á eftir: Athugasemdir frd félagasamtökum Útvegsmannafélag Eyjafjarðar og' nágrennis Ódagsett. Tillögur um breytingar á lögum um afla- tryggingasjóð sjávarútvegsins. Á fundi í Útvegsmannafélagi Eyjafjarðar og nágrennis hinn 19. febrúar s.l., var bréf yðar um breytingar á lögum aflatryggingasjóðs, dags. 5. febrúar s.l., tekið til umræðu. Fundarmenn voru sammála um, að breytinga væri þörf á lögum sjóðsins og benda á tillögu um þetta mál, sem samþykkt var á Fjórðungsþingi fiskideilda í Norðlendingafjórðungi í nóvember s.l. svo hljóðandi: A. Bætur úr sjóðnum, ef um aflabrest er að ræða, verði miðaðar við að fáist sem lágmark bætt það, sem á skortir, að náist full kaup- trygging þeirra manna, sem við veiðarnar starfa, og tilsvarandi upphæð til útgerðarinn- ar, samkvæmt skiptakjörum. B. Unnið verði að því, að sömu bætur við afla- bresti verði um landið allt í sömu skipastærð. Fundurinn telur, að sjóðurinn þurfi að hafa trúnaðarmenn úti um land, a. m. k. einn í hverjum fjói'ðungi, til þess að fylgjast með aflabrögðum og útgerð báta svo og gefa útvegsmönnum upplýsing- ar og sjá um greiðslu bóta á sínum svæðum. Eðli- legast væri, að trúnaðarmenn Fiskifélags Islands tækju að sér þessi störf. F.h. Útvegsmannafélags Eyjafjarðar og nágrennis, Bjarni Jóhannesson (sign.). Útvegsbændafélag Vestmannaeyja. Vestmannaeyjum, 8. marz 1966. Þér skrifið samtökum okkar bréf, dags. 5. febrú- ar 1966, þar sem þér óskið eftir athugasemdum og sjónarmiðum okkar Vestmannaeyinga um breytingar á lögum aflatryggingasjóðs, sem nú á að fara að vinna við. Því miður eru lög þessi orðin að landslögum, sem þvinga útgerðarsvæði að vera í sjóðnum, hvort sem þau vilja vera eða ekki. Við myndum nú að fenginni reynslu samþykkja strax niðurfell- ingu á aflatryggingasjóði, þar sem við höfum í heild látið miklu meira fé í hann en við höfum úr honum fengið. 1 stað þess fengju Vestmanna- eyjar beint 1.4% af útflutningi sínum, sem lagt yrði hér heima í sjóð, er við sjálfir hefðum alla ákvörðun og umsjón með, til úthlutunar á báta- flota okkar. Með hinum lélega útgerðargrundvelli, sem nú er, vegna lágs hráefnisverðs til útgerðar, og sí- vaxandi verðbólgu, sem allt gleypir, höfum við enga löngun til að gefa eða lána óafturkræft, okk- ur óþekktum og óviðkomandi bótasvæðum, fjár- hæðir, sem skipta milljónum, eins og við höfum gert hin seinni ár í Eyjum. Væri ekki orðin þörf á að láta fara fram skoðanakönnun á bótasvæð- um sjóðsins, um þetta atriði? Þá mótmælum við og lýsum hreinni undrun okkar á, hvernig nefnd sú er skipuð, sem annast á umrædda endurskoðun á lögum aflatrygginga- sjóðs. 6 menn eru tilskipaðir að vinna mjög þýð- ingarmikið verk í þágu útgerðarinnar, sem þeim er að helming nokkuð sama um og geta ekki talið sig neinu skipta, hvernig um afgreiðslu fer á, þar sem þetta er algerlega utan þeirra hagsmuna sem launþega, enda sér 13. gr. laganna, með smábreyt- ingu, að á eftir 1. setning komi: „og ber stjórn sjóðsins þá að krefjast o. s. frv., þeirrar trygg-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.