Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 14
Vart fer á milli mála, að oft á tíðum má
rekja þennan vanda til sjávarútvegsins sjálfs,
þar sem margfeldisáhrif hans í góðæri á flest-
ar framkvæmdir í landinu eru slík að ofþensla
myndast skjótlega. Má þá auðvitað einnig
segja að of seint sé beitt nauðsynlegum hag-
stjórnartækjum eða að hemlar þessir séu illa
virkir. Sjávarútvegurinn eða einstakar greinar
hans eru illa búnar að mæta yfirboðum ann-
arra atvinnugreina, ekki sízt margra þeirra,
er starfa í þágu opinberra aðila, þar sem tekj-
ur hans eru jafnan háðar fastskráðu gengi
krónunnar.
Nákvæmir óvilhallir útreikningar sýna, að
útgerðin t. d. getur ekki í flestum tilfellum
veitt betri kjör en þau, sem ákvarðast af fisk-
verði hverju sinni eða önnur hlutaskipti, jafn-
vel í góðæri.
Það sorglega er þó, að stór hluti sjómanna
býr við verri kjör, en ýmis starfsemi í landi
getur boðið.
Olíukreppa.
Hækkun sú á verði olíu og olíutengdrar
rekstrarvöru, svo og á hráefnum almennt, sem
geigvænlegri varð á s. 1. ári en á margra ára
tímabili þar á undan, veldur útgerðinni vissu-
lega ófyrirsjáanlegum erfiðleikum.
Að vísu má segja, að nokkur bót hafi feng-
izt í bili með stofnun verðjöfnunarsjóðs fyrir
olíu. Þetta er hinsvegar skammtímalausn ein-
göngu, þar sem fært er á milli frá einum þætti
útgerðar til annarra. Að vonum eru skiptar
skoðanir um ráðstafanir þessar, enda er byrð-
unum ójafnt skipt — og öðruvísi en venja hef-
ur verið.
Fyrir næsta sumar verður því að leita ann-
arra ráða.
stofnunar fiskiðnaðarins. Vítamíninnihald
lýsisins var nokkru minna en árið áður.
Árið 1973 einkenndist af hækkandi verð-
lagi á flestum efnivörum, þar á meðal feit-
meti. Verð á búklýsi til herzlu var í ársbyrjun
um £.85- tonnið cif í tank, en í árslok var
það komið uppundir £.200.-. Mestur hluti ís-
lenzku framleiðslunnar 1973 á búklýsi var
seldur á síðasta ársfjórðungi 1972 og á fyrsta
ársfjórðungi 1973, og mun meðalverðið, sem
fékkst fyrir hana hafa verið nálægt £.100,-
tonnið. Jurtaolíurnar, sérstaklega soyjabauna-
olía og pálmaolía, ráða að mestu ferðinni hvað
verð á feitmeti snertir. Þessar olíur hækkuðu
mjög mikið í verði, sérstaklega seinnihluta
ársins og er ástæðan aðallega uppskerubrest-
ur 1972 í Sovétlöndunum og fleiri löndum.
Aflabrestur í Perú hafði að sjálfsögðu einnig
nokkur áhrif.
Nú í mörg ár hefur verið lögð höfuðáherzla
Framleitt Útflutt Útflutt Útflutt Útflutt Notkun
Ár allar teg. Meðalal. Fóðurl. til lierzlu alls innanlands
1966 6457 1374 2843 1670 5887 578
1967 4530 952 1650 249 2851 232
1968 4575 944 1525 2834 5303 757
1969 4564 853 1519 2325 4696 735
1970 5403 1088 897 3360 5345 497
1971 4216 901 642 2314 3857 223
1972 4666 1251 837 1722 3810 247
1973 4102 1343 732 3104 5179 223
6 — ÆGIR
Tryggvi Ólafsson:
Þorskalýsisfi’amlciðslan 1973
Meðallýsi var selt
til 40 landa og fóður-
lýsi til 14 landa, 243
tonn voru seld í flösk-
um og dósum 3,5 kg.
og smærri. Birgðir í
ársbyrjun voru 1886
tonn, en í árslok 587.
Eftirfarandi tafla
sýnir framleiðsluna í
tonnum undanfarin 8
ár og í hvaða ástandi
hún var seld:
Lýsisútkoma úr lifrinni á Suðvesturlandi til
Akraness reyndist vera 58,1% (56.12 árið
áður) samkvæmt efnagreiningu Rannsókna-