Ægir - 01.04.1977, Síða 8
Ólafur Björnsson, útgerðarmaður, Keflavík:
Hver verða afdrif
þorskárgangs 1973?
Eftir útkomu
„Svörtu skýrslunn-
ar, og „Bláu bókar-
innar“ urðu miklar
umræður um ástand
þorskstofnsins.
Nefndir voru skip-
aðar og margvísleg-
ar tillögur gerðar
um hvernig hlífa
mætti þorskinum við
ofveiði, og áhersla
lögð á virkt eftirlit.
Þegar til fram-
kvæmda kom, voru tillögur þessar í flestum
tilfellum útþynntar þannig að þær hindruðu
veiðar sem minnst og eftirliti sleppt að mestu.
Daglega má svo heyra hástemmt lof um
ágæti þessa káks, og þvi meira, sem smá-
fiskadrápið er, er hóli um ágæti aflans kom-
ið á framfæri við fjölmiðla.
Á Hafrannsóknastofnuninni virðast menn
hafa sofnað værum blundi og á Alþingi hefur
ekki einn einasti maður látið mál þessi raska
ró sinni, fremur en fyrr.
í haust var haldin ráðstefna á Suðurnesj-
um, þar sem mættu langt á annað hundrað
manns, útgerðarmenn og fiskverkendur, auk
fulltrúa frá sjómönnum, verkafólki og sveitar-
stjórnum, ennfremur þingmenn kjördæmisins
og sjálfur sjávarútvegsráðherrann var þar um
tíma, en engir fréttamenn.
Megintilgangur þessarar ráðstefnu var að
vekja athygli ráðamanna á nauðsyn þess að
rétta þorskstofninn við ásamt sérstöðu Suður-
nesjamanna eins og komið er. Því miður
bólar lítt á árangri. Þá skeður það
nú fyrir skömmu að sjávarútvegsráðherra
heldur heim í kjördæmið sitt með fríðu föru-
neyti og boðar til ráðstefnu um sjávarútvegs-
mál, þar mættu um 80 manns auk starfs-
manna sjávarútvegsráðuneytisins, eins og seg'
ir í Morgunblaðinu.
Margt athyglisvert kom fram á þessari ráð'
stefnu, en það sem sama blað telur kjarna11
úr því, sem fram kom, er, „að Vestfirðinga^
óttast að hálfgert borgarastríð geti orðið 1
landinu ef meiri og frekari aflatakmarkam1-
verði settar á fiskiskipin". Ennfremur
fiskvinnslustöðvar á Suðurnesjum væru oi
margar.
Ekki hefur komið fram að fiskvinnsW'
stöðvar á Suðurnesjum höfðu meira en noí
að gera, að minnsta kosti á vertíðum, fran1
til 1970, þá var vertíðarafli þar 84.000 tonn.
en hefur nú síðustu ár verið undir 40.000 tonh'
um.
Stjórnvöld virðast ekki hafa áttað sig á
flytja hefði þurft vinnslustöðvamar um lel°
og þau fluttu veiðarnar.
1 tilefni þessarar stríðsyfirlýsingar frá ráð'
stefnu sjávarútvegsráðherra, hef ég enn ein11
sinni farið yfir „Svörtu skýrsluna" og „BlaU
bókina“, auk greinargerðar Hcifrannsókna'
stofnunarinnar um nauðsynlega sóknarminnk'
un, sem stjórn L.Í.Ú. fékk nú í vetur, eI’
henni hefur lítt verið hampað. Þar er sama
sókn í ár og á síðasta ári talin alltof mik11'
Verði ekkert að gert er þó ljóst að hún
verður mun meiri, því enn streyma nýtísku
togarar til landsins.
Fiskifræðingar eru sammála um að þorsk'
árgangurinn frá ’73 sé sá sem við gætum not'
að til þess að byggja stofninn upp ef sky11'
samlega væri að farið. Árgangar frá ’74 og ’*
hafa brugðist svo algjörlega, að talið er, 3
þeir skipti litlu í veiðinni. ..
í ársbyrjun ’77 gæti ’73 árgangurinn ver*
í hæsta lagi 400 millj. fiska að mér skils •
Áætlað er að úr honum munum við veiða ca'
140 þús. tonn í ár.
(Ég reikna ekki með að veiddur sé 3. aI"a
106 — Æ GI R