Ægir - 01.04.1977, Qupperneq 12
t
Minningarorð:
Einar Sigurðsson
útgerðarmaður
Með Einari Sigurðs-
syni er fallinn frá
mikill athafnamað-
ur og brautryðjandi
í íslenzkum sjávar-
útvegi. Hann andað-
ist í Landakots-
spítala hinn 22.
marz s.l., 71 árs að
aldri, en hafði þá
fyrir nokkru dregið
sig að mestu í hlé
frá störfum sökum
veikinda.
Einar Sigurðsson var fæddur í Vestmanna-
eyjum hinn 7. febrúar 1906. Nám stundaði
hann í Verzlunarskóla Islands og lauk prófi
1924. Hann hóf kaupsýslustörf í Vestmanna-
eyjum þegar á unga aldri, en sneri sér jafn-
framt snemma að útgerð og fiskvinnslu.
Miklir umbrotatímar voru framundan. Verð-
fall það á sjávarafurðum, er fylgdi í kjölfar
kreppunnar miklu, olli sjávarútveginum mikl-
um erfiðleikum. Aðlögunar var þörf í fram-
leiðslu- og sölumálum sjávarafurða. Saltfisk-
framleiðendur riðu á vaðið og stofnuðu Sölu-
samband ísl. fiskframleiðenda á árinu 1932.
Fiskimálanefnd var sett á laggirnar 1935
(samkv. lögum frá 1934) til að efla fiskiðnað
í landinu og til að leita nýrra leiða til að auka
fjölbreytni í framleiðslu og sölu fiskafurða.
Skömmu áður höfðu hafizt tilraunir með
hraðfrystingu fisks (annars en síldar). Þessi
aðferð náði ekki útbreiðslu fyrr en farið var
að flaka fiskinn og nota plötufrystitæki. Á
þessum og næstu árum hófu ýmsir framtaks-
samir menn rekstur frystihúsa með þessum
hætti, þ.ám Einar Sigurðsson í Vestmanna-
evjum á árinu 1938.
Fiskimálanefnd hafði í fyrstu með hönd-
um sölu á frystum afurðum, enda fylgdi það
sem skilyrði fyrir lánveitingum og öðrum
stuðningi nefndarinnar við frystihúsin. Skjót-
lega varð þó séð, að þetta fyrirkomulag var ei
heppilegt. I ársbvrjun 1941 tók S.Í.S. við sölu
afurða þeirra húsa, er voru á þess vegum og
kaupfélaganna. í lok þess árs hófst raunar
undirbúningur að stofnun S.H. undir forystu
þeirra Ólafs Þórðarsonar og Einars Sigurðs-
sonar. Einar var kjörinn ritari fyrstu stjórn-
ar samtakanna og átti sæti í stjórninni um
áratuga skeið og lengst af sem varaformaður-
Auk þess átti hann þátt í stofnun ýmissa dótt-
urfyrirtækja S.H. og sat í stjórn þeirra, m.a-
sem stjórnarformaður. Þá átti hann sæti í
stjórn Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar
h.f. í Reykjavík. Síðustu ár ævi sinnar var
hann og formaður stjórnar Coldwater Seafood
Corporation, sem S.H. setti á stofn í Banda-
ríkjunum á árinu 1947.
Eins og títt er um menn, sem standa í stór-
ræðum, stóð oft styrr um Einar Sigurðsson,
enda sópaði að honum hvar sem hann fór.
Enginn frýði honum samt áræðis og fram'
takssemi, enda rak hann á eigin vegum eða
var þátttakandi í útgerð báta og togara og
fiskvinnslu víðsvegar um land allt frá Seyð-
isfirði eystra til Flateyrar vestra. Umsvif hans
voru samt jafnan mest í Vestmannaeyjum
og Reykjavík, þangað sem hann flutti búferl-
um á árinu 1950.
Fyrirtæki Einars í Vestmannaeyjum fóru
ekki varhluta af eyðandi mætti eldsumbrot-
anna, er hófust á Heimaey 1973. Sonur hans
Sigurður starfar nú að endurbyggingu þeirra
og er rekstur þegar hafinn, þótt því verki sé
enn ekki lokið.
Einar var félagi í Fiskideild Reykjavíkur
um árabil og átti einnig sæti í stjórn hennar-
Hann var fulltrúi Reykvíkinga á Fiskiþingj
1970—1972. Tók hann jafnan mikinn þátt í
umræðum og tillögugerð. Hann var áhuga'
maður um allar nýjungar í fiskveiðum og
vinnslu og lét þau mál til sín taka framar
öðrum.
Einar sat á Alþingi um nokkurt skeið a
árunum 1959—63. Þá sat hann í bæjarstjórn
Vestmannaevja 1942—1950.
Jafnhliða umfangsmiklum atvinnurekstn
og störfum að félagsmálum, gaf hann sér
tíma til ritstarfa. Var hann ritfær vel og ligS'
ur eftir hann fjöldi greina í blöðum og tíma'
ritum, einkum um sjávarútvegsmál.
Ég flyt eftirlifandi konu hans, Svövn
Ágústsdóttur, og fjölskyldu allri samúðar-
kveðjur stjórnar og starfsfólks Fiskifélags
Islands.
Már Elísson
110 — ÆGIR