Ægir - 01.04.1977, Qupperneq 22
Utgerð og
aflabrögð
SUÐUR- OG SUÐVESTURLAND
í febrúar 1977
Einstök veðurblíða var allan mánuðinn og
gæftir því mjög góðar. Afli á línu og net var
yfirleitt góður, frekar tregur í botnvörpuna
nema hjá togaraflotanum, þar sem aflinn var
frekar góður.
Afli bátaflotans í mánuðinum af botnfiski
varð alls 13.980 (5.408) lestir og 384 (203)
lestir) hörpudiskur.
Margir bátar á svæðinu stunduðu loðnu-
veiðar en þeirra er ekki getið í þessari
skýrslu. Auk þess lönduðu togararnir 5833
(3575) lestum.
Allur afli er miðaður við óslægðan fisk.
Tölur innan sviga eru frá fyrra ári.
Aflinn í einstökum verstöðvum:
Vestmannaeyjar: Þar stunduðu 66 (42) bát-
ar veiðar og lönduðu alls 1872 (881) lestum,
5 (2) með línu og öfluðu 63 (10) lestir í 41
(8) sjóferð, 18 (19) með net og öfluðu 1009
(622) lestir í 196 (92) sjóferðum, 4 (0)
með handfæri og öfluðu 7 (0) lestir í 14 (0)
sjóferðum, 39 (21) með botnvörpu og öfluðu
792 (93) lestir í 217 (56) sjóferðum. Auk
þess landaði Vestmannaey 214 (93) lestum.
Gæftir voru mjög góðar.
Stokkseyri: Þar lönduðu 4 (0) bátar afla,
41 (0) lest úr 19 (0) sjóferðum, allir með
línu. Gæftir voru góðar.
Eyrarbakki: Þar stunduðu 7 (0) bátar veið-
ar og öfluðu alls 103 (0) lestir í 52 (0) sjó-
ferðum, 4 (0) með línu og öfluðu 73 (0) lestir
í 34 sjóferðum, 2 (0) með net og öfluðu 17
(0) lestir í 16 (0) sjóferðum, 1 (0) með botn-
vörpu og aflaði 13 (0) lestir í 2 sjóferðum.
Þorlákshöfn: Þar lönduðu 35 (27) bátar
1603 (845) lestum, 9 (1) voru með línu og
120 — ÆGIR
öfluðu 232 (17) lestir í 91 (6) sjóferð, 23 (23)
með net og öfluðu 1343 (814) lestir í 203 (98)
sjóferðum, 3 (3) með botnvörpu og öfluðu 28
(19) lestir í 8 (6) sjóferðum. Auk þess land-
aði togarinn Jón Vídalín 162 (0) lestum úr 2
(0) sjóferðum. Gæftir voru góðar.
Grindavík: Þar stunduðu 49 (33) bátar
veiðar og öfluðu 2632 (532) lestir, 18 (7) með
línu og öfluðu 716 (90) lestir í 148 (26) sjó-
ferðum, 27 (20) með net og öfluðu 1862 (430)
lestir í 307 (95) sjóferðum, 4 (6) með botn-
vörpu og öfluðu 54 (12) lestir í 36 (11) sjó-
ferðum. Gæftir voru góðar.
Sandgerði: Þar lönduðu 59 (31) bátar afla-
2647 (485) lestum, 33 (13) með línu og öfl'
uðu 1521 (147) lest í 451 (40) sjóferð,
17 (15) með net og öfluðu 658 (302) lestir í
231 (80) sjóferð, 4 (0) með botnvörpu og öfl'
uðu 24 lestir í 19 sjóferðum, 5 (3) með
botnv. og öfluðu 417 (36) lestir í 52 (6) sjó-
ferðum. Gæftir voru mjög góðar.
Keflavík: Þar stundaði 31 (37) bátur veiðar
og öfluðu 946 (651) lestir, 18 (10) með línU
og öfluðu 457 (98) lestir í 137 (23) sjóferð-
um, 11 (25) með net og öfluðu 441(503) lest
í 105 (96) sjóferðum, 2 (2) með botnvörpu °S
öfluðu 48 (50) lestir í 3 (3) sjóferðum. Au^
þess lönduðu 5 (5) togarar 1029 (896) lestun1
í 9 (10) löndunum. Gæftir voru góðar.
Vogar: Þar stunduðu 2 (2) bátar veiðaT
með net og öfluðu 69 (17) lestir í 27 (12)
sjóferðum. Gæftir voru góðar.
Hafnarfjörður: Þar stunduðu 3 (5) bátar
veiðar og öfluðu 102 (159) lestir, 2 (2) með
net og öfluðu 38 (85) lestir í 5 (11) sjóferð'
um, 1 (2) með botnv. og aflaði 64 (65) lesth
í 1 (2) sjóferð. Auk þess lönduðu 5 (5) tog'
arar 1139 (806) lestum í 8 (7) sjóferðum-
Gæftir voru góðar.