Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1980, Page 14

Ægir - 01.01.1980, Page 14
Framsöguræður flutt á 38. Fiskiþingi og ályktanir þess Þorsteinn Gíslason: Orkusparnaður í fískmjölsverksmiðjum Herra forseti, góðir þing- fulltrúar. í minn hlut kom að leggja hér fram til umræðu atriði er varða fiskimjölsverksmiðjur. Frá Austfirðingum kemur er- indi svohljóðandi: „Að fiskimjölsverksmiðj- um og öðrum fiskiðju- verum verði gert kleift með lánafyrirgreiðslum, að ráðast í nauðsynleg- ar framkvæmdir til þess að bæta nýtingu, spara orku og vinna að mengunarvörnum". Og frá Sunnlendingum: „Fjórðungsþing Sunnlendinga vill þakka stjórn Síldarverksmiðja ríkisins fyrir það átak er gert hefir verið í bættri nýtingu á hráefni því er til þeirra berst en minnir á að nokkuð vantar á til betri nýtingar, samanber skýrslu varafiskimála- stjóra Þorsteins Gíslasonar frá 1976, um nýtingu hliðstæðra verksmiðja í nágrannalöndum okkar. Ástæða er brýn til að athuga með hvaða hætti er mögulegt og hvernig komið verði helst við sparnaði í orku ásamt frekari nýtingu á úrgangsefnum frá verksmiðju". Þannig hljóða þessar tillögur. Á þeim þrem árum síðan athugun þessi, sem nefnd er, var gerð hefur mikil bót orðið á hráefnisnýtingu. Nú er meðal- talsnýting ísl. fiskimjölsverksmiðjanna næstum orð- in sú sama og þeirra norsku. Má ætla að þarna hafi orðið um 2% nýtingaraukning. Miðað við 900 þús. tonna loðnuafla gefur þessi aukning um 18 þús. tonn í afurðum, sem eru að söluverðmæti um 3,2 milljarðar kr. I orkumálum hefur aftur á móti orðið óheillaþróun. Verð á rafmagni hefur stórhækkað og olíuverð nærri 5'A faldast á sama tíma og verið er að selja afurðirnar fyrir sama verð í dollurum og það var fyrir 3 árum. Ennþá stöndum við höllum fæti í samanburði á olíunotkuninni því meðaltalsnotkun hér er um 70 kg af olíu á hvert hráefnistonn, þegar t.d. Norðmenn segjast nota 55 kg. Með því olíuverði sem gildir í dag, kostar olía til að bræða 900 þús. tonn af loðnu um 5,6 milljarða kr. Tækist okkur að minnka þessa eyðslu um 10 kg. á hvert tonn háefnis, yrði af því um 800 milljón króna sparnaður. í dag greiða norskar mjöl- verksmiðjur rösklega '/3 lægra verð fyrir olíu en þær íslensku, eða um 57 kr. fyrir hvert kg. á móti 89 kr. Ef miðað er við áðurnefndan 900 þús. tonna ársafla, þá verður mismunurinn um 2 milljarðar króna. Ef við lítum aðeins á nokkrar úrbætur, sem blasa við okkur, þá er það fyrst til að taka að aldur margra gufukatla er talinn í áratugum og jafnvel aftur til seinustu aldamóta. Þeir voru upphaflega hitaðir með kolum, en breitt fyrir olíu. Mikill árangur hefur náðst í olíusparnaði í nýjustu gerð gufukatla. Rafmagnsverð getur orðið einum þriðja minni í dag með fornotkun á gufu gegnum túrbínu. Óbein hitun við vinnslu í stað beinnar hitunar sparar orku. Stækkun soðeimingartækja, fjögurra þrepa tæki í stað þriggja, sparar orku, einangrun allra hitaflata sparar orku. Þurrkarar eru orkufrekustu tækin og mun láta nærri að þeir noti um helming oliunnar. í þeim sparar fullkomin og nákvæm stýring orku. Lokaðar og þéttar hrá- efnisgeymslur auka nýtingu hráefnis og gæði afurða, þær spara orku. Þarna eru nokkur samvirkandi atriði á ferðinni, sem þyrftu brýnna úrbóta við, úrbóta sem kosta mikla fjármuni, en þeir hafa ekki legið á lausu, og þótt falir yrðu, þá með slíkum kjörum og vaxtabyrði að varla verður séð að afkoma þessa iðnaðar eins og hún er í dag þyldi hana. 2 — ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.