Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1980, Blaðsíða 35

Ægir - 01.01.1980, Blaðsíða 35
ekki lengur leyft sér að kasta á hvað sem er til að fylla báta sína með tugum kasta. Krefjast Norðmenn þess nú að við höldum okkur við 600.000 tonna mörkin, án tillits til útkomu síðustu loðnurannsóknarleiðangra og endurmats á stofnstærðinni. í þessu sambandi er vert að minna á það, að sjálfir hafa þeir veitt um 20% af þessum 600.000 tonnum, eða 125.000 tonn, og að það er aðeins á tveimur síðustu sumrum sem þeir hafa stundað loðnu- veiðar við Jan Mayen og veitt úr íslenska loðnustofninum. Mætti ætla að lítill ágóði sé að því fyrir Norðmenn að sækja loðnuna alla þessa leið og hafi litla sem enga efnahagslega þýðingu fyrir þá og fer því ekki hjá því að við íslendingar höfum tilhneigingu til að líta á þessi mál öll sem gleypugang og yfirgangs- semi af þeirra hálfu, jafnvel sem óbeina árás á íslenskt efnahagslíf. Samtök sjómanna og út- vegsmanna í Noregi halda uppi linnulausum þrýstingi á stjórnvöld til að lýsa yfir 200 sjó- mílna fiskveiðilögsögu við Jan Mayen. Þykir þeim hægt ganga og hóta hörðu ef ekkert afgerandi hefur komið fram á þeim vettvangi fyrir lok janúar. Hótanir þessar, sem m.a. fela í sér lokun hafna og að hefja veiðar við Jan Mayen nú þegar, eru þó ekkert annað en fyrirsláttur, þar eð vetrarloðnuveiðar þeirra í Barentshafi eiga að hefjast á sama tíma, og ótrúlegt að loðna sé í veiðan- legu ástandi við Jan Mayen, og jafnvel stórhættu- legt að stunda þar veiðar á þessum árstíma. Þetta vita þeir jafnvel og við. Alvarlegasta vandamálið sem við stöndum frammi fyrir, eins og sakir standa, er að norðurhluti íslandshafs skuli vera opinn hverjum sem er til veiða. Eins og áður hefur skýrt frá hér, hefur tví- lembingatrollið þótt fiskisælt og átt vaxandi vinsældum að fagna meðal fiskimanna í ná- grannalöndum okkar. Helstu kostir tvílemb- •ngatrollsins eru, að nýting smærri báta hefur aukist og afkoma þeirra batnað, hlerar eru ekki notaðir og minnkar mótstaðan í sjónum þar af leiðandi stórlega og olía sparast, en opnum vörunnar er tiltölulega mikil. Þar til fyrir skömmu þótti nauðsynlegt að velja saman sem áþekkasta báta að stærð og vélarafli, en með tilkomu samhæfðra togvindna, þar sem hægt er að stilla nákvæmlega sama átak á togvír hvors báts, hefur þetta stærsta vandamál við tví- lembingatrollið verið leyst. Eftirfarandi uppdrættir sýna /Á í aðalatriðum aðferðina við að kasta tvílembingatrolli. Staða I. Tengivírnum slak- að út. Bátur 1 heldur stöð- ugri stefnu og um 2ja sjó- mílna hraða. Bátur 2 tekur baujuna og lásar togvír sínum í tengivírinn. ?A UnJ Staða II. Gengið frá vírunum. Meðan bátur 1 heldur hraða og stefnu stöðugri, eykur bátur 2 hraða sinn þar til hann er þvert af bát 1, og heldur sig síðan samhliða honum í 30 til 40 faðma fjarlægð. A í 30-40 fm. xU Staða III. Togvírinn dreginn yfir. Bátur 1 slakar út vörp- unni og gröndurum. Sam- tímis er tengivírinn dreginn til baka ásamt togvír báts 2. Staða IV. Grandarinn dreg- inn til baka. Togvír báts 2 lásað í grandarann og hon- um sleppt. Vírarnir jafnaðir. Staða V. Köstun. Stefnunni breytt um tvö strik frá hvor öðr- um og hraðinn aukinn upp í u.þ.b. 6 sjó- mílur. Staða VI. Á togi. oo«-n— /1\ n\ r JT_ ÆGIR — 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.