Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1980, Qupperneq 27

Ægir - 01.01.1980, Qupperneq 27
Lána- og efnahagsmál 1 • 38. Fiskiþing lýsir yfir undrun sinni á þeim linnu- lausa áróðri, sem uppi er hafður um að leggja beri auðlindaskatt á sjávarútveginn. Þingið bendir á að íslenskur sjávarútvegur á í harðri samkeppni við sjávarútveg annarra þjóða, sem ekki leggja á auðlindaskatt. Þvert á móti styrkja helstu samkeppnisþjóðirnar sjáv- arútveg sinn verulega af opinberu fé. Það er nauð- synlegt að öllu sé til skila haldið svo að íslenskur sjávarútvegur fái staðizt styrkjalaust, og jafngildir auðlindaskattur dauðadómi yfir þessari atvinnu- grein. Ætti það að vera hveijum manni auðskilið. 2. 38. Fiskiþing sér ástæðu til að benda á að fisk- iðnaðinn í landinu vantar nú þegar 1000-2000 starfsmenn til þess að geta beint framleiðslunni í þann farveg, sem er þjóðarbúinu hagstæðastur. Til þess að ná þeim markmiðum, sem í sjónmáli eru um framleiðslu og framleiðni, ásamt styttri vinnutíma, þarf fiskiðnaðurinn að bæta við sig a.m.k. 5000 starfsmönnum áður en næsti ára- tugur er liðinn. Þingið telur sérstaka ástæðu til þess að þetta komi fram, þar sem það er útbreiddur misskiln- ingur að fiskiðnaðurinn þurfi ekki um langa framtíð á meiri mannafla að halda en hann hefur nú. 3- Á s.l. hausti voru felld niður aðflutningsgjöld af nokkrum tegundum fiskvinnsluvéla og sér 38. Fiskiþing ástæðu til þess að þakka það. Ekki er þó nóg að gert. Það þekkist ekki meðal sam- keppnisþjóða okkar að lögð séu aðflutningsgjöld á vélar og tæki til fiskiðnaðar. Þingið leggur því áherslu á að unnið verði áfram að því að fella niður öll slík aðflutningsgjöld og telur að fyrsta skrefið í þá átt verði að vera að fiskiðnaðurinn sitji við sama borð og annar samkeppnisiðnaður í landinu. Um s.l. áramót var sú breyting gerð á afurða- lánum fiskiðnaðarins, að vextir voru lækkaðir ur 18.25% í 8.5%, en þar á móti voru lánin geng- ístryggð. Jafnframt gaf fyrrverandi ríkisstjórn loforð um að lækka útgjöld fiskvinnslunnar um 2 - 3%. Með þessari breytingu taldi ríkisstjórnin sig laekka útgjöld fiskvinnslunnar um 2% og hafa þar með staðið við loforð sitt. Nú er það aftur a móti komið í ljós að þessi breyting, vextir og gengistap, mun auka kostnað fiskvinnslunnar á þessu ári um a.m.k. 2% í stað þess að lækka hann um 2%. 38. Fiskiþing harmar að þannig skuli staðið að framkvæmd á gefnu loforði. Þingið telur að ekki verði komist hjá því að taka upp viðræður um endurskoðun þessa máls við næstu ríkisstjórn. 5. 38. Fiskiþing vill enn á ný aðvara stjórnvöld, vegna síhækkandi verðlags í landinu. Verðbólg- an eyðir upp rekstrarfé atvinnuveganna. Þegar svo er komið hlaðast stöðugt upp lausaskuldir, sem verða óviðráðanlegar á stuttum tíma. Þingið bendir á að þrátt fyrir það að á s.l. ári og því sem nú er að líða, hafi farið fram víðtæk endurskipulagning á fjármálum fjölmargra fisk- vinnslufyrirtækja, líði óðum að því að ekki verði komist hjá því að breyta enn á ný lausa- skuldum í föst lán. Jafnframt vill þingið benda á, að mikil nauðsyn er á, að nú þegar fari fram víðtæk endurskipulagning á hinni fjármálalegu hlið útgerðarinnar og í framhaldi af því verði sköpuð aðstaða til að breyta lausaskuldum út- gerðarinnar í föst lán. Enn sem fyrr er það því þjóðarnauðsyn að hafa hemil á verðbólgunni, á annan hátt verður ekki byggt upp heilbrigt og traust atvinnulíf. 6. Næstum öll lán þeirra sjóða, sem lána til fisk- veiða og fiskiðnaðar eru nú gengistryggð og/eða verðtryggð. Auk þessarar verðtryggingar eru greiddir vextir er nema frá 5Vi - 16%. Lána- kjör fjárfestingasjóða sjávarútvegsins eru óhag- stæðari en lánakjör iðnaðarins og landbúnaðar- ins og raunar þau óhagstæðustu sem nokkur atvinnuvegur býr við. í þeirri óðaverðbólgu sem nú geisar er útilokað að atvinnuvegur sem byggir afkomu sína á erlendu verðlagi geti elt innlent verðlag, nema með stórfelldum gengisbreyting- um, sem aftur magna verðbólguna. Þennan víta- hring þarf að rjúfa með aðgerðum er stöðva verðbólguna. Árni Benediktsson: Þróunaraðstoð Cabo Verde Þingforseti, góðir fulltrúar. Ég ætla að leyfa mér að víkja dálítið langt frá þeim efnum sem við höfum verið að tala um og út fyrir það sem er ÆGIR — 15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.