Ægir - 01.07.1981, Qupperneq 10
Vertíðarlok?
Frá fornu fari og allt fram yfir heimstyrjöldina
siðari miðuðust lok vetrarvertíðar við 11. maí.
Aftur á móti var upphaf vetrarvertíðar nokkuð
breytilegt eftir landshlutum og verstöðvum.
Þegar samningar sjómanna og útvegsmanna um
kauptryggingu sjómanna tóku í gildi, svo og trygg-
ingatímabil, breyttist viða afstaða manna til ver-
tíðarloka. Tryggingatímabil var frá 1. jan. til 15.
maí, og fóru margir þá að miða vertíðarlok við 15.
maí. Var skýrslu um vertíðarafla lengi vel eða allt
til ársins 1977 safnað með hliðsjón af trygginga-
tímabili vetrarvertíðar. Var það ekki síst gert með
tilliti til þarfa Hlutatryggingasjóðs, því að bóta-
tímabil sjóðsins voru miðuð við tryggingatíma-
bilin.
Vertíðarlok 1981
Framhald af bls. 403.
Vertíðaraflinn janúar-apríl skiptist á einstakar ver-
stöðvar þannig:
Botnfiskur Þar af Þorskur
tonn tonn
Hvammstangi 301 300
Skagaströnd 2.681 2.017
Sauðárkrókur 3.331 2.342
Hofsós 43 43
Siglufjörður 4.229 3.571
Ólafsfjörður 6.174 4.906
Grímsey 1.040 1.040
Hrísey 1.547 1.265
Dalvík 4.315 3.671
Árskógsströnd 1.391 1.391
Akureyri 9.635 5.826
Grenivík 807 795
Húsavík 3.612 3.470
Raufarhöfn 1.775 1.577
Þórshöfn 1.082 1.067
Samtals 41.963 33.281
Austfirðir.
í ágripi þessu um vetrarvertíð á Austfjörðum
1981, verður sami háttur á hafður og i fyrra, þ.e.
að telja vertíðartímaþil frá janúarbyrjun til apríl-
loka.
Fyrstu þrjá mánuðina var tíðarfar mjög erfitt til
sjósóknar hjá bátunum en aprilmánuður var góður
hvað gæftir varðar og þá var afli stærri netabáta
ágætur.
Heildarbotnfiskafli bátanna var 17.796 tonn en
í þessu sambandi ber samt að hafa í huga, að út-
hald báta var ekki nauðsynlega miðað við upphaf
eða endi tryggingatimabils, heldur fór það og fer
enn eftir fiskgöngum og aflamöguleikum.
Sem fyrr segir var samið um nýtt fyrirkomulag
kauptrygginga á miðju ári 1977. Miðaðist kaup-
trygging eftir það við hvern mánuð. Enn breyttist
viðhorf til vertíðarloka, er stjórnvöld tóku að setja
reglur um aflatakmarkanir á þorskveiðar. Eins og
kunnugt er, var netabátum gert að taka upp net sín
hinn 1. maí á s.l. ári og 8. maí á þessu ári, í báðum
tilfellum í eina viku. Þá var togbátum gert að gera
vikuhlé á togveiðum í eina viku frá 7. maí bæði
árin.
Af framansögðu má ljóst vera, að vertíðarlok
eru vart til lengur i þeim skilnningi, sem áður ríkti.
Dagsetningar, svo sem 11. og 15. maí, heyra því
sögunni til sem lokadagar í þessu efni.
var í fyrra 18.901 tonn. Þar af var þorskur 14.645
tonn á móti 16.829 tonnum í fyrra. Veruleg afla-
aukning varð hjá skuttogurunum. Botnfiskafli
þeirra nú varð 19.766 tonn, en var á sama tíma i
fyrra 15.057 tonn. Þar af var þorskur 15.497 tonn
en í fyrra 9.264 tonn. >
Aflahæsti báturinn 30. apríl var Hvanney-
Hornafirði með 884,2 tonn. Rétt er að geta þess að
Gissur hvíti, Hornafirði landaði 863,8 tonnum 3
sama tíma, og þar að auki 57,1 tonni í Grímsby 28-
janúar. í fyrra var Garðsey aflahæst með 848,0
tonn.
Aflahæsti skuttogarinn var Kambaröst, Stöð-
varfirði með 1.832,5 tonn. Hér er átt við aflann
eins og honum er landað, þ.e. slægður og óslægð-
ur. í fyrra var Hoffell aflahæst með 1.554,6 tonn-
Á einstakar stöðvar skiptist aflinn þannig:
Botnfiskur Þar af þorskur
tonn tonn
Bakkafjörður .... 137 134
Vopnafjörður .... 2.182 1.736
Borgarfjörður .... 80 42
Seyðisfjörður . . . . 2.918 2.294
Neskaupstaður ... 5.195 4.137
Eskifjörður 4.979 4.052
Reyðarfjörður.... 1.705 1.282
Fáskruðsfjörður .. 5.062 4.175
Stöðvarfjörður . .. 2.172 1.649
Breiðdalsvík 815 749
Djúpivogur 863 766
Hornafjörður .... 11.463 9.126
Samtals 37.562 30.142
362 — ÆGIR