Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 11
Um veðurfræði
Erindaflokkur
Trausti Jónsson:
Ofviðri og ofviðra
rannsóknir
Vindstig — vindhviður — vindhraðamet.
í grein sem birtist fyrir nokkrum árum í timarit-
inu Veðrinu, setja Adda Bára Sigfúsdóttir og Flosi
Hrafn Sigurðsson fram þá ágiskun að mesti vind-
hraði sem vænta má einu sinni á 50 árum, sé um
100 hnútar i lOm hæð frá jörð víðast hvar við
strendur landsins og á hálendinu, en þar sem stað-
hættir eru sérstaklega til þess fallnir að magna
A N ATTEMPT
TO DEVEI.Ol’
THE LAW 0F STORMS
í þvi sem hér fer á eft-
ir, verður ofurlítið fjall-
að um það sem kalla má
ofviðrarannsóknir. Þetta
er ansi mikið viðfangs-
efni og hér gefst þvi ekki
tími til að impra nema á
örfáum atriðum. Al-
mennt má segja að of-
viðrarannsóknir þeinist
að orsökum ofviðra svo
og afleiðingum þeirra,
asamt nátengdum atriðum, svo sem tíðni þeirra
°-þ-h. Eins og gefur að skilja eru rannsóknir af
bessu tagi talsvert mikilvægar hérlendis, enda of-
^ðratíðni meiri en víðast annars staðar á byggðum
^ndsvæðum. Mesta furða er því hversu lítið rann-
sóknum á þessu sviði hefur verið sinnt hér. Megin-
astæða þessa er fyrst og fremst sú að fremur lítill
úmi hefur verið afgangs hjá veðurfræðingum þeg-
ar allra mikilvægustu verkefnum í dagsins önn
efur verið sinnt. Þó hefur nauðsyn knúð á að
Serðar hafa verið nokkrar áætlanir um hver sé
mesti vindhraði sem búast má við hérlendis. Sér-
smklega skapaðist á þessu nokkur tímabundinn
ahugi eftir ag möstur í Búrfellslínu fóru að fjúka
hér á árunum og eftir heimsókn fárviðrislægðar-
'unar sem kennd var við fellibylinn Ellen. Þessi
°höpp við Búrfellslínu m.a. höfðu í för með sér
aukinn áhuga ýmissa aðila á að leita til Veðurstof-
Unnar í sambandi við áætlanir um vindálag, ísingar-
n^ttu o.þ.h. og hefur töluvert starf verið unnið á
Þvi sviði á Veðurstofunni.
BY MEANS OF FACTS,
ARRANGED ACCORDING TO PLACE AND TIME;
AND
HENCE TO POINT OUT A CAUSE
for
THE YAEIABLE WINDS,
WITH TIIK VIRW TO
PRACTICAL USB IN NAVIGATION.
ILLUSTRATED BY CHART8 AND WOODCUT8.
THIRD RDITION.
BY LIEUT.-COLONEL tY. REID, C.B., F.R.S.
(0/ the Royal Engineers.)
LONDON:
PUBLISHED BY JOHN WEALE,
LIBRARY OF CIYIL, MILITARY, AND MECIIANICAL ENGINEERING,
59, HIGH HOLBORN.
1850.
Menn eru löngu byrjaðir að vella orsökum ofviðra fyrir sér.
Þýðing á bókartitli: THraun til að finna lögmál stormanna úl
frá staðreyndum röðuðum eftir stað og stund og þar með (til-
raun til) að benda á orsök hinna breytilegu vinda með hagnýti
fyrir siglingar í huga, myndskreytt með korlum og trésniði.
ÆGIR — 363