Ægir - 01.07.1981, Side 51
febrúarmánuð. Urðu bátarnir því fyrir verulegum
frátöfum frá veiðum, en hins vegar gátu togararnir
°ftast verið að. Afli var hins vegar góður hjá linu-
bátunum. Afli togaranna var aftur á móti tregur
aban mánuðinn og voru þeir flestir á karfaveiðum
wegin hiuta mánaðarins.
Skakviðri var mikinn hluta marzmánaðar á mið-
unum útaf Vestfjörðum og setti það svip á sjó-
soknina, sérstaklega við Djúp og frá nyrðri fjörð-
unum. Þar gaf ekki til róðra á aðra viku. Afli línu-
báta var fádæma góður allan mánuðinn, og var
uPpistaða aflans vænn þorskur, en lítið bar á stein-
b't fyrr en rétt siðustu dagana. Afli togaranna var
tregur framan af mánuðinum, en glæddist þegar á
leið. Voru togararnir margir í þorskveiðibanni
bluta mánaðarins og þá að veiðum fyrir sunnan
land. Sjór er nú óvenjulega kaldur útaf Vestfjörð-
um og öll fiskislóðin gjörsamlega lifvana, og telja
menn að það sé orsökin fyrir þessum góða línu-
afla, sem verið hefir nú í vetur.
Tíðarfar var hagstætt til sjósóknar í apríl og
stöðugar gæftir. Afli línubáta var mjög góður
allan mánuðinn og hefir ekki verið betri um árabil,
en afli netabáta var aftur á móti tregur lengst af. ís
var yfir fiskislóð togaranna hluta mánaðarins, og
var afli þeirra mjög misjafn. Voru togararnir flest-
lr að veiðum fyrir austan land síðari hluta mán-
aðarins, en þeir, sem voru á heimaslóð voru á grá-
lúðu- og karfaveiðum.“
Heildaraflinn á vertíðinni í landsfjórðungum
varð 35.274 (37.835) tonn, þar af öfluðu togararnir
^0-855 (24.492) tonn, en bátar 14.419 (13.343)
Vertíðaraflinn janúar-apríl skiptist á einstakar ver-
stöðvar þannig:
Botnfiskur Þar af þorskur
íonn íonn
Patreksfjörður .. 7.086 6.010
Glknafjörður... 1.843 1.004
“ddudalur .. 1.346 714
p*ngeyri 2.582 1.386
^lateyri. 2.363 1.181
Suðurevri 3.203 1.529
úolungavík 5.580 3.181
isafjörður . 9.102 6.116
Súðavík 1.985 986
Hólmavík.. 184 177
Samtals 35.274 22.284
tonn. Þorskur í afla togaranna var 11.641 (19.369)
tonn og í afla báta var hann 10.643 (9.931) tonn,
þorskur í afla togaranna hefur minnkað um hvorki
meira né minna en 40% frá í fyrra fyrir sama tíma-
bil. (Tölur innan sviga eru frá í fyrra).
Aflahæsti báturinn á vertíðinni varð Pálmi, Pat-
reksfirði, með 1.021 tonn, var hann með net allan
tímann, skipstjóri Ólafur Magnússon. Aflahæsti
skuttogarinn varð Páll Pálsson, Hnífsdal, með
1.897,7 tonn, skipstjóri Guðjón Kristjánsson.
Aflatölur miðast við mánaðamótin apríl/mai.
Norðurland.
Fyrstu þrjá mánuði ársins var tíðarfar með ein-
dæmum erfitt og gæftaleysi, norðanátt ríkjandi
með mikilli snjókomu og sjókulda, en þegar kom
fram í apríl fór loks að rofa til og afli að aukast og
varð hann allgóður hjá flestum bátum í þeim mán-
uði.
Heildaraflinn á vertíðinni hjá bátum og togur-
um, sem i þessu yfirliti miðast við mánaðamótin
apríl/maí, varð 41.963 (44.876) tonn og skiptist
aflinn þannig að togararnir öfluðu 28.124 (32.252)
tonn, þar af var þorskur 19.561 (24.277) tonn, og
bátar 13.839 (12.624) tonn, þar af þorskur 13.720
(12.369) tonn. (Tölur innan sviga eru frá í fyrra).
Aflahæsti báturinn á vertíðinni varð Sigþór,
Húsavík, með 403 tonn, en hann var einnig afla-
hæstur í fyrra, skipstjóri Ingvar Hólmgeirsson.
f vetur voru gerðir út frá Norðurlandi 22 skut-
togarar, eða jafnmargir og í fyrra, 18 af minni
gerðinni og 4 af þeirri stærri. Aflabrögð þeirra
voru að miklum mun lélegri á þessari vetrarvertíð
en árið áður, eða sem nemur 13%, og munar þar
langsamlega mest á þorskaflanum, sem er um 20%
minni í ár. Aflahæstu skuttogarnir voru Kald-
bakur, Akureyri, með 2.246,5 tonn, skipstjóri Þor-
steinn Vilhelmsson, en hann var einnig aflahæstur
í fyrra, og næsthæst varð Sigurbjörg, Ólafsfirði,
með 1.786,4 tonn, skipstjóri Ólafur Jóakimsson.
Aflatölur miðast við mánaðamótin apríl/maí.
Framhald á bls. 362.
ÆGIR — 403