Ægir - 01.07.1981, Blaðsíða 57
loftnotkun vélar eru tveir rafdrifnir blásarar frá
Semco, af gerð MXIRN-60 II, afköst 13000
ni3/klst hvor blásari.
Rafkerfi skipsins er 380 V riðstraumur fyrir raf-
mótora og stærri notendur, en 220 V riðstraumur
ljósa og almennra nota í íbúðum. Fyrir 220 V
kerfið eru þrír 45 KVA spennar 380/220 V.
Rafalar á aðalvél eru með samfösunarbúnaði og
unnt er að samfasa hjálparvélarrafal hinum í stutt-
an tíma. í skipinu er 63 A, 380 V landtenging. Tog-
vindur eru knúnar jafnstraumsmótorum sem fá afl
frá riðstraumskerfi skipsins i gegnum thyristora til
afriðunar.
í skipinu er austurskilja frá HDW af gerð TE
1-0, afköst 1 mVklst. Tankmælikerfi er frá Kam-
strup Metro A/S, með aflestri i vélarúmi. Fyrir
vélarúm er Halon 1301 slökkvikerfi.
Ibúðir eru hitaðar upp með heitu lofti, en í loft-
rás innblásturs til ibúða er komið fyrir vatnshita-
elementi, sem fær varma frá kælivatni aðalvélar og
rafhitaelementum til vara og í höfn, en auk þess
eru rafmagnsofnar á nokkrum stöðum. Fyrir eftir-
hitun á lofti eru hitastýrð rafhitaelement i einstök-
um klefum. Fyrir upphitun á neyzluvatni er 140 1
hitakútur með kælivatnshitun og rafhitun til vara.
Fyrir verkstæði, hjálparvélarými og ýmiss önnur
rými fyrir véla- og tækjabúnað eru rafhitablásarar.
Loftræsting fyrir íbúðir er með einum rafdrifnum
Llásara frá Semco af gerð GKH-02, afköst 2400
m3/klst. Fyrir eldhús annars vegar og snyrtiklefa
hins vegar eru sogblásarar frá Semco, afköst 610
°8 680 m3/klst. Fyrir vinnuþilfar er einn rafdrifinn
blásari frá Semco, afköst 2000 m3/klst. Fyrir
kreinlætiskerfi eru tvö vatnsþrýstikerfi frá SDR
^0jrup Maskinfabrik/Iron, annað fyrir sjó en hitt
^yrir ferskvatn, stærð þrýstigeyma 300 1.
Fyrir vökvaknúinn vindubúnað frá Brusselle eru
mjú vökvaþrýstikerfi: eitt i dælurými, fyrir hjálp-
urvindur framskips, með 1200 1 vökvageymi og
Pfemur rafdrifnum vökvaþrýstidælum, dælur frá
“russelle af gerð P 54 R 310, knúnar af 77 KW
rafmótorum; eitt í hjálparvélarými, fyrir
jálparvindur afturskips með 500 1 vökvageymi og
e>uni rafdrifinni vökvaþrýstidælu af gerð P 54 R
10 frá Brusselle, knúin af 77 KW BEN rafmótor;
eitt sjálfstætt kerfi fyrir akkerisvindu með 19
Eýý rafdrifinni dælu. Fyrir blóðgunarker,
^ribönd, skutrennuloku, fiskilúgu, bakstroffu-
Vludur o.fl. er sjálfstætt vökvaþrýstikerfi með
tveimur dælum frá Danfoss, knúnar af 7.5 KW
rafmótorum. Fyrir löndunarkrana er sambyggt
rafknúið vökvaþrýstikerfi. Fyrir stýrisvél eru tvær
rafdrifnar vökvaþrýstidælur.
Fyrir lestarkælingu er ein sjókæld kæliþjappa
frá Bitzer af gerð K 260 H/VI W, knúin af 7.5 KW
rafmótor, afköst 15700 kcal/klst við + 10°C/-
/ + 30°C og er kælimiðill Freon 22. Fyrir matvæla-
kæli er ein loftkæld kæliþjappa frá Bitzer af gerð
II La, afköst 1315 kcal/klst við + 10°C/-/ + 30°C,
og er kælimiðill Freon 22.
íbúðir:
Undir neðra þilfari, í framskipi, eru fjórir 2ja
manna klefar. Á neðra þilfari er fremst snyrting
með tveimur salernisklefum, einum sturtuklefa og
sauna-klefa. S.b.-megin þar fyrir aftan er eins
manns klefi fyrir matsvein, þá einn 2ja manna
klefi, eins manns klefi fyrir 2. vélstjóra og aftast
íbúð 1. vélstjóra, sem skiptist í setustofu, svefn-
aðstöðu og snyrtingu. B.b.-megin aftan við snyrt-
ingu eru tveir eins manns klefar fyrir stýrmenn og
aftast íbúð skipstjóra, sem skiptist í setustofu,
svefnaðstöðu og snyrtingu. Aftast fyrir miðju er
stakkageymsla með þvottaaðstöðu og salernis-
klefa.
í þilfarshúsi á efra þilfari er fremst borðsalur,
b.b.-megin þar fyrir aftan eldhús og kæld mat-
vélageymsla með tveimur 400 1 frystikistum, en
s.b.-megin stigagangur og matvælageymsla. S.b.-
megin við stigagang upp í brú er snyrting.
Utveggir og loft í íbúðum eru einangraðir með
100 mm glerull og klætt innan á með plasthúðuð-
um spónaplötum.
Vinnuþilfar:
Vinnuþilfari aftan við netageymslu og dælurými
er skipt í tvö rúm, vinnslurými I og II, og er aftara
rýmið aðalaðgerðarrýmið.
Vökvaknúin fiskilúga er framan við skutrennu
og veitir aðgang að þrískiptri fiskmóttöku, um 30
m3 að stærð, aftast í aðgerðarrými. í efri brún
skutrennu er vökvaknúin skutrennuloka, sem er
felld lóðrétt niður. Fiskmóttöku er lokað að
framan með áluppstillingu og framan við hana er
blóðgunaraðstaða.
Framan við fiskmóttöku eru fjögur blóðgunarker
með vökvaknúnum lyftibúnaði til að hleypa fiskin-
um í rennur framan við kerin. Þar framan við eru
fjögur aðgerðarborð með aðstöðu fyrir 8 menn, og
undir þeim slógstokkur, þversum yfir skip, fyrir
ÆGIR — 409