Ægir - 01.11.1984, Síða 11
Setningarræða
Þorsteins Gíslasonar, fiskimála-
stjóra við upphaf 43. Fiskiþings
1984.
Ráðherra, góðir þingfulItrúar
°g aðrir gestir. Ég býð ykkur öll
velkomin til 43. Fiskiþings. Sér-
staklega býð ég velkomna nýja
fulltrúa sem nú sitja Fiskiþing í
fyrsta sinn.
Ég vil minnast hér tveggja
^laga okkar sem látist hafa á
ar>nu, þeirra Jóns Gests Bene-
diktssonar, framkvæmdastjóra í
^ogum, sem lést 1. febrúars.l. og
^ngantýs Elíasar Jóhannssonar,
erindreka Fiskifélags íslands, en
hann lést 12. mars s.l.
Jón Ben, en svo var hann ortast
nefndur, fæddist í Vogum 23.
ataí 1904. Ævistarf hans var í
kágu sjávarútvegsins, sem sjó-
^aður, útgerðarmaður og fisk-
Verkandi. Hann var mikill félags-
^álamaður og var í stjórnum
^argra félagasamtaka bæði
j^nan hrepps og utan, fulltrúi á
'skiþingum í nær tvo áratugi og
rúnaðarmaður Fiskifélags ís-
ands í heimabyggð frá 1957.
Útför Jóns Benediktssonar var
gerð frá Kálfatjarnarkirkju 10.
febrúar s.l. að viðstöddu miklu
fjölmenni.
Angantýr Elías Jóhannsson
fæddist á Selá í Árskógsstrandar-
hreppi í Eyjafirði 23. ágúst 1915.
Hann stundaði sjómennsku á
yngri árum, aflaði sér vélstjórnar-
réttinda og var um tíma í skiprúmi
hjá bróður sínum, hinum þjóð-
kunna aflamanni Arnþóri á v/s
Dagnýju frá Siglufirði. Frá Selá
fluttist Angantýr að Hauganesi
þar sem hann gerðist útibússtjóri
Kaupfélags Eyfirðinga og stund-
aði útgerð jafnframt. Hann sat
mörg Fiskiþing, var lengi í stjórn
Fjórðungssambands fiskideilda á
Norðurlandi og gegndi erind-
rekastarfi Fiskiféiagsins á
Norðurlandi í nær tvo áratugi.
Útför hans var gerð í heimabyggð
hans 17. mars s.l. að viðstöddu
miklu fjölmenni.
Frá því seinasta Fiskiþing var
haldið í lok nóvembermánaðar
1983 hafa orðið hörmulegar slys-
farir við sjósókn og siglingar. Alls
hafa 15 íslenskir sjómenn látist
við skyldustörf sín. Bið ég við-
stadda að rísa úr sætum í virðing-
arskyni við hina látnu.
Eins og ævinlega á Fiski-
þingum verða nú mál öryggis- og
slysavarna ofarlega á baugi. Þar
má ekkert tækifæri láta ónotað til
úrbóta. Það má ekki henda að
misskilningur og frá honum mis-
sætti, tefji framgang góðra mála.
Því hver einasta töf sem verður á
framkvæmd og uppfyllingu
skyldna gæti valdið tjóni sem ald-
rei yrði bætt. Þrátt fyrir miklar
framfarir í gerð stjórn- og öryggis-
tækja skipa, verða allt of mörg
slys við siglingu og störfin um
borð.
Þakkir eru hér færðar þeim,
sem stóðu að ráðstefnu sem
nýlega var haldin um öryggismál
sjómanna. Þar náðu menn saman
málefnalega og mörg óljós atriði
skýrðust. Mál og vandamál voru
rædd af einurð. Von mín er sú að
verðskuldaður árangur hljótist af,
en ekki orð án athafna.
Undanfarnar vikur hefur farið
fram undirbúningur að þinghaldi
því sem við hefjum hér í dag.
Margir fundir hafa verið haldnir í
fiskideildum, aðalfundirogfjórð-
ungsþing. Fundarsókn hefur víð-
ast verið með ágætum og starfs-
hugur mikill. Til þessa þings hafa
því börist mörg mál til meðferðar
frá öllum aðilum sjávarútvegsins.
Fiskifélagi íslands er ekkert óvið-
komandi í íslenskum sjávarútvegi
því markmið félagsins hefur verið
frá upphafi að efla hag og hvers
konar framfarir í íslenskum sjáv-
arútvegi í víðtækustu merkingu,
veita hinu opinbera umbeðna
þjónustu og vera tengiliður milli
stjórnvalda og allra stétta og
greina sjávarútvegsins. Fiskiþing
hefur æðsta vald í málefnum
Fiskifélagsins og felur stjórninni
meðferð þeirra milli þinga.
Stjórnun fiskveiða hefur um
árabil verið eitt af aðalmálum
Fiskiþings. Fyrir tæpu ári náðist
hér samstaða í tillögugerð um
kerfisbreytingu í stjórnun fisk-
veiða fyrir árið 1984, sem lítt
breyttri var beitt sem forsendum
við kvótasetningu á sjö helstu
botnfisktegundum.
Þessi breyting var gerð með
lögum til eins árs. Vegna hins
ÆGIR - 523