Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1984, Síða 13

Ægir - 01.11.1984, Síða 13
tölu, sem er lögð til grundvallar fjármagnskostnaði, en telja Verður hana í algjöru lágmarki. Samkvæmtáðurnefndri áætlun Þjóðhagsstofnunar er niðurstaða á mati helstu útgerðargreina, að botnfisksveiðiflotinn sé rekinn með 1 % tapi af tekjum. Afkoman er þó talin misjöfn, þar sem bent 8r á að 37 yngstu togararnir séu reknir með 8-9% tapi. í þessari áætlun er eins og hjá fiskvinnsl- Unni ekki tekið tillit til þeirrar 8reiðslubyrðar, sem taprekstur nndangengins tíma hefur í för rneð sér. Fyrirheit hafa verið gefin um að 'étta greiðslubyrði sjávarútvegs- 'ns með skuldbreytingarlánum. ^ægast sagt hafa þessar skuld- óreytingar gengið hægt og erfið- 'ega, þó munu þær komnar nokkuð á veg hvað stofnlána- skuldir flotans varðar, en lausa- skuldabreyting skemmra á veg komin. Ég vænti þess að hér á þinginu Verði þessi mál tekin til vand- 'egrar íhugunar. Úrlausnir verður að finna þó þær verði ekki allar 'undnar hér. Leiðir sem hægt er a& sameinast um, þannig að þær geti orðið atvinnugreininni til hagsældar. Seinasta áratuginn hefur stór- felld en nauðsynleg breyting orðið á vinnslustöðvum sjávar- afla. Úreltar vinnslustöðvar hafa verið endurbyggðar og nýjar reistar frá grunni. í dag fer úrvinnsla flestra tegunda fram í fullkomnum verksmiðjusölum þar sem beitt er þeirri bestu tækni sem þekkist. Við eigum afl- mikil og vel búin fiskiskip. Það var átak að koma upp þessari aðstöðu. Vegna ytri aðstæðna í náttúrunni hefur afli dregist saman tímabundið. í augnablik- inu eru skipin e.t.v. of mörg, en á skammri stundu skipast veður i lofti, því svipull er sjávarafli. Hagvöxtur fylgi r gjaldeyris- öflun. Til að tryggja fulla atvinnu í landinu þarf nægan hagvöxt. Hjáróma raddir syngja um offjár- festingu í sjávarútvegi og erlenda skuldabagga. Sjávarútvegurinn aflar þjóðinni í dag um 70% af gjaldeyristekjunum. Hlutdeild sjávarútvegsins í erlendum skuld- um þjóðarinnar var um sl. áramót 16.1%. Það er raunalegt að heyra menn í ábyrgðarstöðum lýsa því yfir við alþjóð að helstu afkomu- vandamál þjóðarinnar stafi frá of mörgum fiskiskipum. Það væri fróðlegt að vita hvað þessum mönnum dytti í hug að segja, ef okkurfæri að vantaskiptil að tak- ast á við vaxandi þorsk-, loðnu- og síldarstofna. Hér mun koma fram í dag álit fiskifræðinga um ástand fisk- stofna og veiðimöguleika árið 1985. Varlega ber að fara í að áætla aflatölur fyrir árið í ár, en haldi áfram sem horfir með loðnuveið- arnar, gæti farið svo að þetta yrði 5. besta aflaár okkar á íslands- miðum, en til þess þyrfti aflinn að verða um 1300 þús. lestir. Hér verður staldrað við, en ýmsum öðrum þáttum sjávarút- vegsins og starfsemi Fiskifélags- ins á liðnu starfsári eru gerð skil í skýrslu minni, sem flutt verður hér síðar í dag. Til þessa þings hafa borist mörg mál frá öllum greinum sjávarút- vegsins. Ósk mín er sú, að á næstu dögum berum við gæfu til að finna leiðir og ná samstöðu í þeim málum, sem bíða hér afgreiðslu. 43. Fiskiþinger sett.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.