Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1984, Síða 36

Ægir - 01.11.1984, Síða 36
G'ímur Valdimarsson, Ásgeir Matthíasson og Gurmar Stefánsson: 2. AÐFERÐIR Blóðgun og slæging þorsks 1. INNGANGUR Rétt blóðgun bolfisks er sá þáttur sem hefur hvað mest áhrif á gæði afurðanna, hvort heldur þær eru ferskar, frystar eða salt- aðar. Illa blóðgaður fiskur verður dökkur eða rauðleitur í vöðvann og fellur af þeim sökum í lægri gæðaflokka. Það er vel þekkt að mikilvægast er að blóðga fiskinn lifandi og láta honum blæða í rennandi sjó. Ekki eru menn þó á eitt sáttir um það hvernig eigi að bera sig að við blóðgunina. íslenzka ferskfiskreglugerðin frá 1970 kveður á um að skera eigi á slagæðina sem liggur undir líf- oddanum frá hjartanu og fram í tálkn. Þesseigi að gæta aðskadda ekki hjartað, því að með slætti sínum hjálpi það við að tæma æðakerfi fisksins. Ýmsar rann- sóknir hafa hins vegar sýnt, að betri árangur fæst með djúpum skurði, þ.e. að skera í sundur bæði kvið- og baklægu slagæð- arnar (Huss og Asenjo, 1976). Svo virðist sem þessi aðferð hafi í reynd verið viðhöfð á íslandi um árabil. Fyrrnefndar rannsóknir Huss og Asenjo sýndu reyndar ekki gæðamun á flökum, hvort sem hjartað var fjarlægt eða ekki. Töldu þeir að það væri vöðva- samdráttur, eða dauðakippir, sem hefðu mest að segja um að losa blóðið úr vöðvum fisksins. íslenzka ferskfiskreglugerðin kveður einnig á um, að fiskinum eigi að blæða út áður en rist er á kviðinn og innyflin fjarlægð. Þetta gerir það að verkum að framkvæma verður blóðgun og slægingu í tveim aðskildum aðgerðum. Víða erlendis tíðkast hins vegarað blóðga fiskinn, rista fyrir og taka innan úr í einni og sömu aðgerðinni. Þessi aðferð tekur talsvert minni tíma en sú fyrri og þess vegna hafa íslenzkir sjómenn tekið hana upp í æ ríkari mæli á síðari árum. Þetta hefur leitttil deilna milli sjómanna og fiskverkenda um þetta atriði, þeir síðarnefndu halda því fram, að sé fiskur blóðgaður og slægður í einni aðgerð fáist mun verra hráefni en sé gert að í tvennu lagi. Sérstak- lega hefursaltfiskurverið nefndur í þessu sambandi, meiri blóð- æðar komi fram í þunnildum og kúttsárið verði dökkt. Til að varpa Ijósi á þessa deilu gekkst sjávarútvegsráðuneytið fyrir því að gerð yrði rannsókn á þessum mismunandi aðferðum við blóðgun og slægingu og kannað hvaða áhrif þær hefðu á gæði ferskra, frosinna og saltaðra afurða. Tilraunirnar voru skipu- lagðar í samvinnu við samtök sjómanna, sölusarntaka fisk- iðnaðarins og Framleiðslueftirlit sjávarafurða. Tvær tilraunir voru gerðar, báðar um borð í togaranum Ásþór RE 10, sú fyrri á Hala- miðum í nóvember 1983 og sú síðari á Víkurgrunni, íapríl 1984. Lifandi, óskaddaður og átulítill þorskur, 50-80 cm á lengd, var tekinn úr nokkrum bölum, þrjá daga í röð. Hvern dag voru valdir 80 fiskar, þannig að í báðar til- raunirnar voru notaðir464fiskar. Fyrirkomulag tilraunanna er sýnt á mynd 1. Allur fiskurinn var blóðgaður með djúpum skurði þannig að skorið var á bæði kvið- og baklægu hálsæðarnar. Helm- ingur fisksins var látinn liggja á dekki í fjórar klst. (dauður fiskur) fyrir blóðgun og slægingu, en þá var hann kominn í dauðastirðn- un. Cert var að hinum helmingn- um strax (lifandi fiskur). Hvorum þessara hópa var aftur skipt ' tvennt. Helmingurinn var blóðg- aður með því að skera á hálsæð- arnar og látið blæða í 15 mín. áður en rist var fyrir og tekið innan úr (tvær aðgerðir). Hinn helmingurinn var meðhöndlaður á sama hátt nema hvað rist var fyrir og tekið innan úr strax eftir að skorið hafði verið á hálsæð- arnar (ein aðgerð). Fiskinum var síðan annað hvort látið blæða 1 rennandi sjó, eða á dekki (í lofti)- Eftir þvott í fiskþvottavél, sem tók u.þ.b. eina mínútu, varallurfisk- urinn kafísaður, með kviðinn niður í 90 I plastkassa. Eftir fjög- urra daga geymslu í ís var fiskur- inn handflakaður og hvert flak merkt með númeruðu plast- merki. Eftir ferskfiskmatið vat hægra flakið af hverjum fisk1 hraðfryst í lausfrysti (með roði og klumbubeini), en blautverkaður saltfiskur framleiddur úr vinstri flökunum. 548-ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.