Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1984, Síða 54

Ægir - 01.11.1984, Síða 54
BÓKAFREGN Ásgeir Jakobsson: Lífið er lotterí. Saga af Aðalsteini Jónssyni og Alla ríka Setberg 1984.192 bls. Engin þörf ætti að vera á því að kynna þá félaga Aðalstein jóns- son og Ásgeir Jakobsson sérstak- lega fyrir lesendum Ægis. Annar þeirra hefur árum saman stundað útgerð og fiskvinnslu, en hinn verið einna mikilvirkastur Islend- inga í skrifum um sjávarút- vegsmál auk þess að hafa skrifað tvær ágætar ævisögur útvegs- manna, þeirra Einars Guðfinns- sonar og Tryggva Ófeigssonar. Bókin Lífið er lotterí, saga af Aðalsteini Jónssyni og Alla ríka, er byggð upp á hefðbundinn hátt ævisagna. Ættir söguhetjunnar eru raktar aftur um 1800 og síðan sagtfrá ævihlaupi hennarfráfæð- ingu og fram á þennan dag. Ævi Aðalsteins Jónssonar minnir um margt á gömul íslensk ævintýr, sem þó eru sífellt að gerast. Hann ólst upp í sárri fátækt á fyrri hluta aldarinnar, tókst með mikilli vinnu að verða vel bjargálna, hóf útgerð og síld- arsöltun, lenti í síldarævintýrinu og vegnaði svo vel að hann fékk viðurnefnið ríki. Að baki öllu þessu, hvort sem viðurnefnið er réttnefni eða ekki, er mikil saga. Enginn hefur grætt fyrirhafnarlaust á útgerð á íslandi, a.m.k. ekki á síðari árum og á síldarárunum urðu menn svo sannarlega að vinna, ef eitthvað átti að ganga. En hver er þessi saga? Það er kannski mesti galli bókarinnar, að lesandinn er ekki miklu nærað lestri loknum. Frásögnin af starfsemi Aðal- steins austur á Eskifirði, útgerð hans, fiskvinnslu og uppbygg- ingu er að mínu mati allt of yfir- borðskennd. Við fáum góða mynd af yfirborðinu, af því hvernig skipastóllinn óx og breyttist, af ýmsum ágætum sam- starfsmönnum, af því hvernig fyrirtækin uxu og þróuðust og af því hvernig nýrra úrræða var leitað þegar síldin hvarf og um tvennt var að velja: hætta eða finna fyrirtækjunum ný verkefni. En hvað bjó að baki? Hvernig tókst þetta allt, hvernig gátu umsvifin orðið svo mikil á svo skömmum tíma sem raun bar vitni? Þessu verður vitaskuld ekki svarað hér, en að mínum dómi hafa þeir Ásgeir og Aðalsteinn látið fram hjá sér fara ágætt tæki- færi til að lýsa í grundvallarat- riðum þeirri atvinnuþróun, sem varð á Austfjörðum á síldarár- unum og síðan, og ekki síður til þess að lýsa atvinnuháttum, sem nú eru óðum að gleymast, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr. Gömlu síldarárin með allri sinni stemmningu, spenningi, vökum og erfiði eru nú hluti af sögunni. Þau koma aldrei aftur, jafnvel þótt síldin kunni að snúa til baka. Viðhorfin eru gjörbreytt og ný tækni er að ryðja þeim vinnuháttum, sem tíðkuðust við söltun sumarsíldarinnar úr vegi. Og mannlífið, sem hrærðist á síldarárunum. Það er líka horfið, allt orðið gjörbreytt. Frá mörgu þessu er ég viss um að Aðalsteinn hefði vel kunnað að segja. Hvers.vegna hann gerir það ekki veit ég ekki, en ef til viH liggur skýringin í því sem Ásge|r Jakobsson segir í bókarlok, að sögugerðinni hafi verið of naumt skammtaður tíminn. Það á aldrei að gera, en auðvelt að vera vitur eftirá. ,«■ Þegar ég frétti að samstarf heto tekist með þeim Ásgeiri og Aða - steini þóttist ég hafa ástæðu til a ætla, að nú væri von á góðri bók, vissi að Ásgeir er ágætur aevi- sagnaritari, einkum þegar um sögu útgerðar- og sjómanna er a ræða, og taldi hann jafnframt hafa komist í feitt. Árangurinn er hins vegar alls ekki sá sem e§ hafði vonast til. Bókin er of Y''r' borðskennd og ekki fjallað um ýmsa forvitnilega þætti, sem tu ástæða hefði verið að gera ræki leg skil. Á hinn bóginn er bókm ágætlega læsileg, hún er hressi lega skrifuð, margar skemmti- legar sögur í henni og Asgem bregst ekki tungutakið fremur venju. Allur frágangur bókarinnar e einnig með ágætum og g° ur fengur að ýmsum myndum, sem hana prýða. Jón Þ. Þúr‘ 566 — ÆCIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.