Ægir - 01.03.1985, Blaðsíða 39
f ef Varö framboðsaukningin
p3 ,aPan/ um 100 þúsund tonn,
i eru' sern flutti út nettó um 57
Pfsund tonn árið 1984, hafði flutt
n nettó 37 þúsund tonn árið
Ur> frá íslandi um 65 þúsund
onn 0g ChHe
um 40 þúsund
nn. Verðið féll úr um 430 doll-
rum f byrjun aprí| í um 300 doll-
a i júlí og hefur lítið breyst úr
5 effráertalin hækkun ístuttan
fa fyrri hluta nóvember, er 340
o arar fengust hæst fyrir íslenskt
oonuiýsi Söluverð íslensks
nu,Vsis hefur að jafnaði verið
5 dollurum hærra en verð á
)aPonsku lýsi. Eftirfarandi línurit
, ^lr glögglega breytingar á verði
0 terdam, annars vegar á jap-
ns u búklýsi og hins vegar á
sojabaunaoiíu;
Mjög mikil hækkun á soja-
baunaolíu mánuðina mars-maí
s.l. ár hafði engin áhrif á lýsis-
markaðinn. Var verðmunur á
þessum vörutegundum mestur í
maí, þegarsojabaunaolían komst
hæst í 983 dollara á Rotterdam-
markaði og varð þar með yfir 600
dollurum dýrari en búklýsið.
Mánuðina júlí-nóvember var
sojabaunaolían að jafnaði
tæpum 400 dollurum dýrari, sem
er miklu meiri verðmunur en
eðlilegt getur talist, því að árin
1978 til 1983 var verðmunurinn
140 dollarar að meðaltali.
Næstum allur útflutningur
framleiðslulandanna fer á
markað utan dollarasvæðisins,
og aðeins þrjú lönd, Holland,
Bretland og V-Þýzkaland, kaupa
um 75% af öllu framboðnu lýsi,
eða nálægt 25% hvert þeirra.
Þegar tekið er tillit til, að Banda-
ríkjadollar hækkaði á árinu um
23,7% gagnvart pundi og 14,7%
gagnvart þýzku marki, sem og
hinnar miklu hlutdeiIdar Evrópu-
landanna í lýsiskaupum, þarf
engan að undra þótt þessi gengis-
þróun hafi töluverð áhrif til lækk-
unar dollaraverðs lýsisins. Öðru
máli gegnir um jurtaolíurnar, þar
sem heildarársframleiðslan er yfir
60 milljónirtonna og aðeinstæp-
lega 18% hennar er neytt í V-
Evrópu.
Enn liggja ekki fyrir nákvæmar
tölur um búklýsisframleiðsluna
hér á landi á árinu 1984, en hún
mun hafa verið nálægt86 þúsund
tonnum, mest loðnulýsi, eða um
83.000 tonn. Útfluttvoru 55.844
tonn, að verðmæti kr. 601.069.591, FOB,
þar af 53.896 tonn af loðnulýsi. Samsvar-
andi tölur frá 1983 eru: framleiðsla 23.270
tonn, útflutningur 4.982 tonn.
Á liðnu ári voru framleidd hjá Hydrol h/f
2009 tonn af harðfeiti, mestmegnis úr
loðnulýsi, þar af voru 1289 tonn flutt út.
Seint á árinu voru seld 1800 tonn til við-
bótar í samvinnu við Síldarverksmiðjur
ríkisins, en þetta magn varóafgreitt um ára-
mótin. Afkastageta hersluverksmiðjunnar
er um 10.000 tonn á ári, þannig að unnt er
að auka þessa framleiðslu mikið, ef verð
leyfir.
Ómögulegt er að spá nokkru um verð-
þróun þessa árs. Neysla á búklýsi virðist
hafa aukist talsvert árið 1984, og þó svo að
sú aukning haldist árið 1985 eru birgðir nú
allmiklar, t.d. 92.600 tonn í Rotterdam í
janúarlok 1985 á móti 52.600 tonnum á
sama tíma í fyrra. Veiði virðist ætla að
verða góð í Perú, þótt óvissa sé um útflutn-
ing þaðan, og framleiðsla verður meiri hér
en áætlað var. Þegar þetta er ritað, um
miðjan febrúar, er lýsismarkaðurinn þó
heldur að styrkjast.
ÆGIR-87