Ægir - 01.03.1985, Blaðsíða 32
Bragi Eiríksson:
Skreiðarframleiðslan
1984
Árið 1984 var skreiðarfram-
leiðslan lítil, sbr. bráðabirgða-
tölur Fiskifélags íslands 30. nóv-
ember 1984.
Fyrsta janúar til 31. desember
20.674 tonn miðað við fisk upp
úr sjó. Umreiknað í skreið verður
jaetta ca. 3.000 tonn af skreið.
Einnig hefur verið verkað ca.
3.000 tonn af þurrkuðum haus-
um.
Útflutningur skreiðar árið
1984:
Skreið:
tonn kr. fob
Grænland 0.9 387.000
Svíþjóð 0.0 6.000
Noregur 0.2 155.000
Belgía 0.6 94.000
Frakkland 2.5 458.000
Grikkland 1.8 251.000
Ítalía 262.0 48.089.000
Júgóslavía 0.0 5.000
Rúmenía 0.0 7.000
Sovétríkin 0.0 5.000
Bandaríkin 36.1 5.348.000
Kanada 0.5 244.000
Veneuzuela 0.2 31.000
Nígería 1.2 211.000
Ástralía 8.0 1.237.000
Samtals: 314.0 56.528.000
Hausar:
Nígería 991.8 35.548.000
Skreið og hausar samtals 1.305.8 92.076.000
Það kemur í Ijós í ofangreindri 5.975 tonn að verðmæti
töflu að nánast enginn útflutn- 674.516.000.
ingur hefur verið á skreið til Níg- í pökkum voru fluttir út
eríu allt árið 1984 en til saman- Nígeríu 1983 132.788 pakkar
burðar þá voru flutt út árið 1983 1984 aðeins 22 pakkar.
Ástand og horfur í Nígeríu
Ég skrifaði grein um skreiðat-
málin í marshefti Ægis 1984 þar
sem rætt var nokkuð um þessi at-
riði. Þegar sú grein var skrifuð
höfðu engin innfl utn i ngsleyf'
verið gefin út fyrir skreið. Eins og
öllum framleiðendum og útflytJ'
endum skreiðar er kunnugt vora
engin innflutningsleyfi veitt fyr,r
innflutning skreiðar til Nígerfu
allt árið 1984.
Það er þegar búið að skrifa
mikið mál í blöð landsins ogflytJ3
fréttir bæði í sjónvarpi og útvarp1
um erfiðleikana sem skapast hafa
á íslandi með þeirri stefnu Níg'
eríumanna að leyfa ekki innflutO'
ing á skreið. Við þær fréttir er nU
litlu að bæta. Þann 1. febrúar s.l-
höfðu engin innflutningsley'1
verið veitt.
í þessari grein er ekki hægt a^
segja neitt annað en það ar)
skreiðarmenn vona það í lengstu
lög að stjórnvöld Nígeríu muo1
leyfa innflutning á árinu 1985-
Nígería hefur glímt við gífurleg
efnahagsvandamál, sem her-
stjórnin hefur tekið að sér að
reyna að leysa en sú stjórn ger2"
stjórnarbyltingu þann 30. deS'
ember 1983.
Fyrstu viðbrögð voru þau að
Nígería ýmist minnkaði stórlega
eða hreint bannaði innflutning a
fjölda vörutegunda og ’el
skreiðin í þann flokk, sem engion
innflutningur var leyfður á.
Þó voru flutt út síðastliðið át
frá íslandi til Nígeríu 991 tonn af
hausum. Það var gert með því a^
innflutningsleyfi frá árinu 1983
voru endurnýjuð. Slík endurnýj'
un fékkstekki á þeim fáu innflutn-
ingsleyfum fyrir skreið sem ekki
var hægt að Ijúka á árinu 1983-
Nokkur innflutningsleyfi vofU
gefin út í nóvember/desember
1983, en voru með því skilyrði að
gjaldeyrisleyfi fylgdi ekki eins og
venja hafði verið.
80-ÆGIR