Ægir - 01.10.1985, Blaðsíða 6
Hjálmar Vilhjálmsson, Vilhelmina Vilhelmsdóttir
og Svend-Aage Malmberg:
Fjöldi og útbreiðsla fisk-
seiða í ágúst 1985
Árleg könnun á fjölda og
útbreiðslu fiskseiða við ísland,
Austur-Grænland og í Græn-
landshafi var gerð á rannsókna-
skipunum Bjarna Sæmundssyni,
8/8—5/9 og Árna Friðrikssyni, 8-
27/8 1985. Þessum athugunum
er einkum ætlað að veita fyrstu
vísbendingu um árgangastærð
þorsks, ýsu, loðnu og karfa auk
þess sem jafnhliða fást upplýs-
ingar um ýmsar aðrar fisktegund-
ir.
Aðferðir við öflun gagna og
úrvinnslu voru með venjulegu
sniði. Mælingar á sjávarhita og
söfnun dýrasvifs fóru fram á fyrir-
fram ákveðnum stöðum. Auk
þess var mældur koltvísýringur a
tveim djúpstöðvum úti af Sna?"
fellsnesi og norður af Siglunesi og
gerðar bergmálsmælingar á sma-
loðnu og kolmunna. Ekki verður
fjallað frekar um síðasttaldar
athuganir í þessari skýrslu.
Rannsóknasvæðið, sjórann-
sókna- og togstöðvar, svo og leiö'
arlínur skipanna eru sýndar a
1. mynd. Eins og í fyrra varð a
sleppa suðurhluta Grænlands-
hafs, þ.e. sunnan 63. gráðu
n.br., og kemur það einkum
niður á karfaseiðunum. Að öðru
leyti var yfirferð með venjulegum
hætti.
Leiðangursstjórar á Bjarna
Sæmundssyni voru Ólafur Ha1'
dórsson og Vilhelmína VilhelmS'
dóttir, en Hjálmar Vilhjálmsson
7. mynd. Leiðarlínur og stöðvar, ágúst 1985.
554-ÆGIR