Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1985, Síða 23

Ægir - 01.10.1985, Síða 23
Leiðrétting við ísafjarðargrein það er alkunna, að vitleysur Serri einu sinni komast á kreik er erfitt að kveða niður. Einkum ef Paer komast á prent og öðlast Pannig eilíft líf. Getur þeim þá sk°tið upp hvað eftir annað Paðan í frá. Tvaer slíkar villur er nauðsyn- le8t að leiðrétta úr kaflanum um Velbátaútgerð í grein um ísafjörð ' tbl. Ægis þessa árs, á blaðsíðu .3. Hinfyrri er varðandi „Dísir" ^iarðarfélagsins. Þærmunualdr- e' hafa verið fleiri en fimm, en sú siötta og síðasttalda, Védís, var a ^rei til nema í grein í Ægi 1951 arn vélbáta á ísafirði. Ef til vill efur verið ætlunin að dís þessi yrð' til, en það varð aldrei raun- Veruleiki. í myndatexta á sömu síðu, er sagt að þar sé sexæringurinn Stanley á ferð, fyrsti vélbáturinn hér við land. Þetta mun vera alrangt, því engin Ijósmynd er til af Stanley, svo vitað sé. Myndin sýnir hins vegar sexæringinn Ölver, sem nú er í vörslu Byggða- safns Vestfjarða á ísafirði. Ölver var smíðaður árið 1941 fyrir for- göngu Bárðar G. Tómassonar skipaverkfræðings og sýndur á ísafirði það ár. Myndin er tekin við það tækifæri. Bátinn smíðaði Jóhann Bjarnason frá Bolungar- vík, kunnur bátasmiður á sinni tíð. Tvær villurtil viðbvótarurðutil í togarakaflanum, og er hér með beðist velvirðingar á þeim. Á bls. 438 segiraftogara Græðis-félags- ins, en hann hét Hafstein, með einu en ekki tveimurennum. Sagt hefur verið að nafnið vísi til hins fyrsta ráðherra landsmanna, sem var yfirvald og þingmaður Isfirð- inga um síðustu aldamót, og dáður af mörgum. Á sömu síðu er talað um togarann sem nefndur var upp og kallaður Skutull. Hlutafélag það sem gerði hann út hét Valur. Vonandi hafa ekki verið vaktir upp nýirdraugar með þessu enni og nafnleysi. Að lokum þakka ég þeim sem gefið hafa mér ábendingar um það sem aflaga fór, og bið les- endur Ægis að afsaka drauga- ganginn. Sigurður Pétursson. Tilkynning frá Aflatryggingasjóði Fæðispeningaráhafnadeildar; gildirfrá 1/9til 30/11. kr. flokkur: o/vélbátar og bátar undir 12. brl........................120.00 2- flokkur: bátar 12 til 100 brl.....................................190.00 3- flokkur: önnur skip stærri en 100 brl............................. 254.00 4- flokkur: skuttogarar, loðnuskipog sambærileg skip ................317.00 Stjórn Aflatryggingasjóðs. ÆGIR-571

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.