Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1985, Page 30

Ægir - 01.10.1985, Page 30
Vott hráefni Ógerningur er að telja upp allar þær fisktegundir eða teg- undir úrgangs, sem nota má í vot- fóður. Sem stendur er líklegt að hagkvæmast sé að nota loðnu og svo fiskúrgang að einhverjum hluta. Almenn reynsla Norð- manna er sú, að óheppilegt sé að nota fiskúrgang eingöngu sem vothluta fóðursins. Sennilega er skýringin sú, að gæði úrgangsins eru gjarnan mjög misjöfn, slógi er t.d. mjög hætt við skemmdum og úrgangur frá frystihúsunum hefut oftast mjög hátt steinefnahlutfall- Þráttfyrirþetta mætti nota mestan hluta þess fiskúrgangs sem til fellur hér á landi til fiska- fóðurgerðar, en til þess þarf að koma til mjög öflugt gæðaeftirlit og öruggar geymsluaðferðir. nægilega lágum. Það má þó reikna með því, að veruleg breyt- ing verði á þessu á komandi árum. Kröfur til fiskmjöls í fiskafóður. - Hráefnið ferskt og órotvarið. Þurrkað í gufuþurrkurum eða við tiltölulega lágt hitastig. — Þráavarnarefni blandað í mjölið við framleiðslu. Efnasamsetning mjölsins: , . Lágmark Hámark Prótein ........ 60% Vatn............ 5% w% F,ta ........... 10% Aska....................... 76% Salt ....................... 3% Til þess að uppfylla kröfurnar um lágmarkspróteininnihald mjölsins verður að framleiða það úr heilum fiski, og kemur þá loðnumjöl helst til greina. Ekkert mælir þó á móti því að nota mjöl úr öðrum smáfisktegundum eins og t.d. sandsíli, kolmunna og spærlingi. Með endurbótum á verksmiðjunum og betri skipu- lagningu við mjölvinnsluna, ætti því að geta verið nægilegt fram- boð á fiskmjöli til fiska- fóðurgerðar hérá landi. Lýsi Loðnulýs; er einkum notað sem titugjafi í fiskafóður í Noregi. Svo fremi sem loðnuveiðar verði ekki bannaðar aftur hér, ætti að vera nægilegt framboð á loðnu- lýsi. Einnig hefur ágæt reynsla fengist af lifrarlýsi. Að öllum lík- indum mætti einnig nota gott búklýsi ef skortur yrði á loðnu- lýsi. Rotvörn á votu hráefni , Vegna þess að vott hráefni skemmist fljótt og fiskveiðar hér við land eru árstíðabundnar verður að rotverja mest af þv' hráefni, sem ætlað ertil votfóður- gerðar. Þartil á allra síðustu árum Rækjuúrgangur Rækjuúrgangur inniheldur auk litarefnanna töluvert af prótein- um og einnig bragðefni sem auka fóðurtöku hjá laxfiskum. Það er því æskilegt að nota rækjuúrgang í fiskafóðurblöndur. Hér á landi fellur til mikið magn af rækjuúr- gangi, sem er nánast ekkert nýttur. Erfiðlega hefur gengið að þurrka rækjuúrgang án þess að litarefnin skemmist og þess vegna eru gerviIitarefni venjulega notuð í þurrtoður. Hins vegar er bæði hægt að frysta og sýra rækjuúr- gang og varðveita hann þannig án þess að litarefnin skemmist og er því ekkert sem mælir á móti notkun rækjuúrgangs í votfóður- 578-ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.