Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1986, Síða 6

Ægir - 01.02.1986, Síða 6
Óvíða eiga orð rómverska stjórnmálaspekingsins Pompejusar betur heima en á Islandi, er hann mælti forðum af snilld sinni til áróðurs fyrir eflingu flota síns. „Nauðsynlegt er að sigla, ekki er nauðsynlegt að lifa". Eða með öðrum orðum: „Það er lífsnauðsynlegt að sigla." Asíðari hluta 19. aldar jókstáhugi manna mjögáeflingu sjávarútvegsins er menn skynjuðu hve „lífsnauðsynlegt landsmönnum var að fiska" og að fiskveiðarnar voru orðnar forsenda búsetunnar í landinu. Af brýnni þörf tóku því margir af forystumönnum helstu atvinnugreina landsins höndum saman um að stofna framfarafélag sjávarútvegsins og Fiskifélag íslands varð til 20. febrúar 1911. Markmið félagsins hefur frá upphafi verið: að efla hag og hverskonar framfarir í íslenskum sjávarútvegi og veita hinu opinbera umbeðna þjón- ustu. Fullyrða má að Fiskiþing og störf Fiskifélagsins hafi átt drjúgan þátt í þeirri hröðu og miklu þróun, sem orðið hefur í sjávarútvegi okkar í þau 75 ár sem félagið hefur lifað. A þessum miklu umbrota- og breytingatímum hefur starfsemin orðið að laga sig að breyttum aðstæðum. Það hefur verið gert með því að breyta starfsháttum og lögum félagsins. Lagabreytingin 1973 varðfélaginu mikil efling, en þá gerðust öll helstu samtök sjávarútvegsins aðilar að Fiskifélag- inu og starfsemi þess. Undanfarið hefur félagsmálaáhugi farið vaxandi í hinum ýmsu verstöðvum víða um land og má merkja það á vaxandi styrk Fiskiþings. Sögu félagsins verða gerð skil hér í riti okkar ásamt störfum hinna sjö starfsdeilda sem sinna þeim daglegu störfum, sem félaginu ber. Hér eru færðar þakkir öllum þeim mörgu afbragðs starfsmönnum, sem helgað hafa félaginu krafta sína og hæfileika. Öllum, sem hafa haft samskipti við félagið á 75 ára starfsferli eru færðar þakkir. Það er einlæg ósk allra Fiskifélagsmanna að þau samskipti verði jafn farsæl og áður og störf Fiskifélags íslands megi verða sjávarútveginum og öllu þjóðfélaginu til hagsældar. Þorsteinn Gíslason

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.