Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1986, Síða 15

Ægir - 01.02.1986, Síða 15
Þótt Guðbrandur hafi ekki munað eftir áhrifum Schacks á Valtý þá veit hann um áhrif Amundsens á Tryggva en segirekki meira um Amundsen. Matthías í sinni frásögn gerir hlut Amund- sens mikinn og þótt sjálfsagt sé að gera ráð fyrir að Matthías sé yfir- foringjanum vilhallur, þá getur hann stutt frásögn sína tilvitn- unum í skýrslur þessa foringja. Matthíasi segist svo frá „Capt. H.Amundsen" í febrúarblaði Ægis 1908: Æesendur Ægis fá hér að sjá ^nynd af foringjanum á Islands Falck í fyrra, er tók við því starfi eftir Capt. Saxild og viljum vér ^iðja lesendur blaðsins að virða á betri veg, að vér höfum ekki tækifæri til að minnast nánar á- æviatriði þessa manns, en aðeins geta þess, að hann í sambandi við Capt. Saxild gerði mestan usla útlendum fiskilögbrjótum hér við iand næst á eftir hinum alkunna Capt. Schack. En það sem þessi maður hefur sérstaklega gert fyrir ísland og sem efalaust verður fiskveiðum iandsins til mikilla framfara með framtíðinni, er undirbúningur hans og áhugi á stofnun alls- herjar-fiskveiðifélags fyrir allt 'andið, sem í líkingu við „Félagið t'l eflingar norskum fiskveiðum" °g „Danskt fiskveiðifélag", skyldi starfa að samvinnu meðal allra landsmanna er hefðu fiskveiðar að atvinnu. Þetta málefni bar hann fyrir larjóstinu og barðist fyrir því með svo miklu kappi, að hann minnt- 'st undantekningarlaust á það við ^vern sem hann átti tal við, bæði alþingismenn, embættismenn og s)ómenn og lét hann fáa fara svo frá sér, að hann ekki hvetti þá til að hefjast handa og jafnframt fékk þá til að lofa því, að stuðla að stofnun þessafélagsskapar. Hann Sagði það oft, að hér á íslandi, Tvær yngismeyjar á reitunum. bæði á sjó og landi, væri mikið verkefni að inna af hendi og drit- fjöðrin til að koma því í fram- kvæmd væri framtakssemi og ekki sízt samvinna. Og svo langt er máli þessu komið áleiðis fyrir hans óþreytandi áhuga, að menn víðsvegar um landið eru reiðu- búnir að starfa að þessu og ganga í slíkan félagsskap, og að lög eru þegar samin og verða að lík- indum birt innan skamms. Eftir þessum síðustu orðum að dæma eru Tryggvi og skipstjór- arnir búnir að halda fundinn 1908 og Bjarni Sæmundsson að semja lögin með hliðsjón af lögum norska félagsins „Selskabet forde norske Fiskeriers Fremme". í minningabók sinni Litiö til baka 2. b. birtir Matthías skýrslu, sem Amundsen sendir danska „sjómálaráðuneytinu" 1907: „hað er tilfinnanleg vöntun á félags- skap meðal fiskimanna. Af ofan- greindum ástæðum hefur yfirfor- ingi landhelgisgæzlunnar gjört sér far um að styðja að því, að myndaður verði félagsskapur meðal íslenzkra fiskimanna og þeirra er áhuga hafa fyrir þróun fiskveiðanna. Ætlazt er til þess. ÆGIR-75

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.