Ægir - 01.02.1986, Side 18
norske Fiskeriers Fremme", en
Tryggva Gunnarssyni líkaði ekki
þessi nafngift og stakk þá Jens
Pálsson, prófastur í Görðum,
uppá nafninu: „Fiskifélag íslands".
Þar sem lögin voru ekki samþykkt
á þessum fundi og einnig margt
annað, sem menn vildu athuga
betur, varð þetta ekki stofnfundur
en bætt var við tveimur mönnum
í undirbúningsnefndina, þeim
Geir Sigurðssyni og Hannesi
Hafliðasyni.
"Næsti fundur var haldinn
20.febrúar og var það stofnfund-
ur, lögin samþykkt og nafngiftin
Hannes Hafliðason,
forseti 1911-1913 og 1916-1921.
Matthías Þórðarson,
forseti 1913-1915.
og kosin stjórn. Biskup landsins,
Þórhallur Bjarnason kom, og þá
líklega fyrstur manna, með þá
uppástungu að félagið hefði fasta
starfsmenn sem ferðuðust um
landið, sem sagt erindreka að
dæmi Búnaðarfélagsins og sá
maður eða menn yrðu að vera
sjómenn, annað kæmi ekki til
álita.
Matthías Þórðarson telur upp
nokkra íslenzka menn, sem hann
segir að beri að þakka meira en
öllum öðrum að Fiskifélagið var
stofnað. Hann telur fyrstan
Tryggva Gunnarsson, Magnús
Sigurðsso'n, síðar Landsbanka-
stjóra og dr. Bjarna Sæmunds-
son, þá þingmenn Reykvíkinga
dr. Jón Þorkelsson og Magnús
Th.S. Blöndahl, síðar útgerðar-
mann, Magnús Kristjánsson,
alþm. á Akureyri, Steingrím
Jónsson, sýslu- og alþingismann,
Pétur Jónsson á Gautlöndum
alþingismann, Matthías Olafs-
son, kaupmann í Haukadal og
Geir Sigurðsson.
Það er athyglisvert, sem áður
hefur verið bent á, að stærstu
útgerðarmennirnir í landinu
koma ekkert nálægt þessari félags-
stofnun og hún varð ekki að veru-
jón Bergsveinsson,
forseti 1922-1923.
leika fyrr en að vélbátaútgerðin
jókst og að henni stóðu fjölmargir
einstaklingar fremur en stórút-
gerðir og þar með vaknaði áhugi
stjórnmálamanna á félagsstofn-
unni og afskipti stjórnmálamann-
anna leiddu svo strax til þess að
fjárstyrkur fékkst frá Alþingi.
Fiskifélagið hefði koðnað niður,
ef ekki fengist í byrjun fjárhagsað-
stoð, en hún var 2.500 króna
styrkur frá þinginu, félagið var
óstarfhæft án þessa styrks.
Fyrstu stjórn félagsins skipuðu
Hannes Hafliðason, skipstjóri og
var hann forseti, en meðstjórn-
endur voru dr. Bjarni Sæmunds-
son, Magnús Magnússon, fram-
kvæmdastjóri og Geir Sigurðs-
son, skipstjóri og. var hann ritari
stjórnarinnar.
I fyrstu lögum Fiskifélagsins
segir svo í 2.grein: „Tilgangur
félagsins er að styðja og efla allt
sem megi til framfara horfa í fisk-
veiðum íslendinga í sjóm, ám og
vötnum og þessum tilgangi ætli
félagið að ná með því að fylgjast
með nýmælum í veiðiaðferðum
og fiskmeðferð og veita verðlaun,
ef tilefni gefist, styrkja menn til
utanfarar til að afla sér þekkingar,
gefa leiðbeiningar, stuðla að
Kristján Bergsson,
forseti 1924-1940.
78 -ÆGIR