Ægir - 01.02.1986, Qupperneq 20
þing ekki breytt sem fyrr segir,
nema með samþykki aðalfundar,
þar sem Reykjavíkurdeildin réð
algerlega. Þannig voru yfirráð
bæði yfir félaginu og Fiskiþingi
njörvuð saman í höndum aðal-
deildarinnar fyrstu árin.
Guðbrandur Jónsson er með
undarlega skýringu á því, af
hverju það varð við stofnun Fiski-
félags, og gerð fyrstu laganna, að
svo mikið vald var lagt í hendur
Reykjavíkurdeildarinnar. Hann
segir: „Reyni maður að gera sér í
hugarlund, hver ástæðan hafi
verið, virðist manni þetta fyrst og
fremst hafa verið gert af því, að
meginið af allri útgerð landsins
var og er rekið úr Reykjavík."
Þetta er náttúrlega helber vit-
leysa. Af 169 þilskipum 1906
voru ekki nema 46 í Reykjavík og
Seltjarnarnesi og nær allur
árabátaflotinn utan Reykjavíkur
og sá floti var með um 70% af afla
landsmanna um 1906 og um það
leyti, sem Fiskifélagið er stofnað
og lög þess samin, voru hlutföllin
svipuð, nemaað vélbátarnir voru
með mikinn hluta af því, sem ára-
bátar voru áður með og vélbáta-
útgerðin var eins og árabátaút-
gerðin, að mestum hluta utan
Reykjavíkur. Guðbrandur hefur
ekki kynnt sér hvernig þessi skipt-
ing var 1911 heldur horft til þess,
sem var 1936, þegar hann skrifar
söguna, að mikill hluti togara-
flota landsmanna var þá í Reykja-
vík, en það nægir samt ekki til að
fullyrða að meginið af útgerö
landsmanna hafi þá heldur verið
í Reykjavík.
Vald Reykjavíkurdeildarinnar
fyrstu árin eru því ekki réttlætan-
leg frá því sjónarmiði, sem Guð-
brandur tilfærir um útgerð,
fremur hitt, sem hann nefnir, að
kunni að hafa ráðið lagasetning-
unni, að stofnendurnir hafi óttast
ringulreið eða los, ef ekki væri
öruggt miðstjórnarvald í Reykja-
vík, aðaldeildinni.
Starfsemin fyrsta árið
Starfsemi Fiskifélags íslands
eða Reykjavíkurdeildarinnar, var
lítil fyrsta árið eftir stofnfund, 20.
febrúar 1911. Stjórnarfundur var
ekki haldinn fyrren 23. nóvember
um haustið og þá rædd útgáfa
Ægis, sem svo var hafinn á ný í
ársbyrjun 1912. Ritstjóri var ráð-
inn Matthías Þórðarson, sem
verið hafði ritstjóri Ægis og útgef-
andi frá júlí 1905 til júlí 1909.
Leigð var skrifstofa í Templara-
sundi 3 tihfundahalda ogaðseturs
fyrirstjórnina. Skrifstofan varekki
opin daglega fyrr en í ársbyrjun
1914, að Sveinbjörn Egilsson var
ráðinn að henni hinn 4. janúar
það ár, og í sama mund tók Svein-
björn við ritstjórn Ægis vegna
flutnings Matthíasar Þórðarsonar
af landi brott.
Ávarp til landsmanna var sent
út 1. desember og bréf send 61
manni, 21 í Vestfirðingafjórðungi,
11 í Norðlendingafjórðungi, 11 í
Austfirðingafjórðungi og 15 í
Sunnlendingafjórðungi.
Alþingi veitti strax á þessu
fyrsta starfsári félaginu 2500
króna styrk fyrir árið 1911 og um
leið sömu upphæð fyrir 1912,
því að í þennan tíma samþykkti
Alþingi fjárlög til tveggja ára.
Árið 1912 var hiðfyrsta starfsár
félagsins. Þá var unnið aðstofnun
dei Ida og þær voru orðnar í árslok
28 og meðlimir 542, þar af 461
úti á landi og af þeirri tölu 113 í
Bárufélaginu á Eyrarbakka. I
Reykjavíkurdeildinni voru félagar
81, þar af 36 ævifélagar.
Tekjur Fiskifélagsins frá febrúar
1911 til 31/12 1912 eða í tæp
2ár, voru ekki til þess fallnar að
auka trú manna á fjárhagslegt sjálf-
stæði félagsins. Ríkisstyrkurinn
var meginuppistaðan í fjárhagn-
um. Aðrar tekjur kr. 1.102,14.
Greitt árstillög félagsmanna (1 kr. árgjald) ............. kr. 71,00
Ævigjöld, 10 kr. hvert, 36 manna - 360,00
Skattur frá deildum, 25 aurar á deildarfélaga - 38,25
Fjárveiting úr landsjóði - 2500,00
Tekjur af Ægi:
Greidd 219 Exempl. 1912 kr. 331,70
Auglýsingar ............... — 280,60 - 612,30
Vextiraf fé úrsparisjóði ................................... - 20,57
Allskr. 3602,14
GJÖLD:
Prentun á lögum, pappírog ritföng kr. 142,35
Húsaleiga, þar með talin fundahöld - 126,50
Húsmunir, keyptir .......................................... - 232,25
Kol, olía og ræsting ....................................... - 21,25
Auglýsingar og innheimtulaun - 28,95
Talsímagjöld og símskeyti .................................. - 84,29
Varið til útbreiðslu félagsins - 343,40
Kostnaður við Ægi:
Laun ritstjóra kr. 500,00
Prentun og pappír kr. 973,95
Hefting, útsending og burðargj............ kr. 224,69
Ritlaun kr. 10,00 - 1708,64
ísparisjóði 31/12 1912 ..................................... - 754,14
í peningum hjá gjaldkera ................................... - 160,37
Kr. 3602,14
80-ÆGIR