Ægir - 01.02.1986, Page 68
Nýtt „sónar"-kerfi
FRÉTTATILKYNNING:
Umboðsmenn SIMRAD geta
meira en selt sónara og dýptar-
mæla.
í fyrra (hönnuðu þeir) hófu þeir
undirbúning að „Sonar program"
hugmynd sinni ‘il endurnýjunar
á eldri sónurum. Kerfi þetta var
sett á markað nú í haust, og geta
sjómenn nú eignast nýjan ogfull-
kominn sónar á hálfvirði. Hug-
myndin kom fram í fyrra á 2ja
daga fundi með öllum umboðs-
mönnum á Norðurlöndum.
Umboðsmennirnir áttu að lýsa
beinum samskiptum sínum við
notendur Simrad tækjanna. Það
kom fram að þó að botnbúnaður-
inn sé dýr, bilar hann sjaldan.
Tæki í brú eru stöðugt að breyt-
ast, og hingað til hefur þurft að
endurnýja allt þegar um sónar
útbúnað er að ræða. Þetta er
kostnaðarsamt og útkoman sú, að
margir festa kaup á ódýrari sónar
en þeir ættu að gera. Hér er á
ferðinni nýtt tæki í brúna, sem
getur tengst eftirtöldum Simrad
sónar: SK-3, SB-2, SQ-4, ST, SV,
SL.
Þróun kerfisins hefur verið í
fullum gangi síðan í nóbember
1984. „Retrofit" kerfið var kynnt
á fiskveiðisýningu í Nantes, í
Frakklandi og Vigo á Spáni í sept-
ember sl. Málið er á lokastigi og í
ágústsl. varfyrsta tækiðtengtum
borð í bát (skip) fyrirtækisins
„Simson Echo".
Allir munu hagnast á þessu
nýja kerfi. Við hjá Simdrad
breikkum línuna hjá fyrirtækinu.
Sjómaðurinn kemst hjá að henda
tækjumfrá borði, og þeirfá meira
128 - ÆGIR
pláss í brúnni með nýtískulegri
tækjum, þar sem öllu er safnað
saman í lítið tæki í stað margra
stórra, eins og með gömlu sónar-
ana. Ný tölvutækni gerir það
mögulegt að tengja gömul tæki
við ný, og spara þannig kapal-
lagnir og fleira.
Simrad mun ekki hætta að þróa
nýja botnbúnaði sem hægt er að
tengja við „Retrofit" skerminn
seinna.
Jafnvel hér er stefnt að nýjum
möguleikum. Það mun ætíð vera
einhver sem langar að breyta
öllu, og nýsmíði krefst nýrra
tækja. Fyrir þá hins vegar sem
hafa góðan botnbúnað um borð i
skipum sínum, er möguleiki á að
festa kaup á nýtískulegum sónar
á sanngjarnara verði en áður var.
Allar niðursetningar o g
prófanir á „Retrofit" tækinu eru
unnar af umboðsmönnum okkar
á íslandi, Friðrik A. Jónssyni hf. 1
Reykjavík.