Ægir - 01.04.1987, Blaðsíða 32
216
ÆGIR
4/87
inniheldur rækjuúrgangur tölu-
vert af próteinum og bragðefnum
sem auka fóðurtöku hjá laxfisk-
um. Það er því æskilegt að nota
rækjuúrgang í fiskafóðurblöndur.
Erfiðlega hefur gengið að þurrka
rækjuúrgang þar sem of mikil
hitun eyðileggur litarefnin, sem
eru eftirsóknarverð, en hinsvegar
er bæði hægt að frysta og sýra
rækjuúrgang og varðveita hann
þannig til blöndunar í fóður.
Gera þarf frekari tilraunir með
vinnslu af þessu tagi.
4.4. Grásleppa
Á ári hverju fleygjum við um
5-6 þús. tonnum af grásleppu.
Sem stendur virðist eini mögu-
leikinn á nýtingu vera meltu-
vinnsla. Skyldi koma sá dagur á
þessum síðustu tímum vaxandi
áhuga á sérstæðum sjávarréttum
að markaðir finnist fyrir „sérverk-
aða grásleppu"?
4.5. Fiskkraftur
Eins og flestum er kunnugt
hefur vaxið mjög áhugi á fram-
leiðslu ýmiss konar unninna fisk-
rétta úr þvegnu fiskfarsi, svoköll-
uðu surimi. Úr þessu hráefni hafa
verið unnir fiskréttir svo sem gervi-
krabbi og gerviskelfiskur. Hafa
þessar afurðir líkað vel bæði vest-
anhafs og austan og sala á þeim
aukist jafnt og þétt. Tilraunir með
surimivinnslu hér á landi hafa
hins vegar sýnt að verð á þessari
afurð sé of lágt til að slík vinnsla
geti borgað sig. Með vaxandi sölu
á fiskréttum úr þessu hráefni vex
þörfin á ýmiss konar bragðefnum
t.d. humar- og skelfiskkrafti. Hér
ættu að vera möguleikar fyrir
okkur. Fyrir 7-8 árum voru
gerðar tilraunir á Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins með að
vinna humarkraft úr humar-
búkum og klóm. Þetta var gert
með tiltölulega flóknum aðferð-
um. Efnið var hakkað og blandað
með ísoprópýlalkóhóli, sem
síðan var eimað upp þannig að
eftir varð rauðleitt humarþykkni.
Þessi afurð reyndist vel og fékk
góða dóma erlendis, en rekstrar-
áætlanir sýndu að vinnslukostn-
aður væri of hár. Nú er áhugi á
því að gera tilraunir með það
hvort ekki sé unnt að framleiða
bragðefni úr humar-, rækju- og
skelfiskúrgangi með ódýrari
hætti.
4.6. Lifur
Nýting á lifur er fyrir löngn
orðið klassískt mál en hefur öðl-
ast nýtt mikilvægi vegna þeirra
niðurstaðna um hollustu fiskfitu
sem ég gat um áðan. Eftirspufn
eftir kaldhreinsuðu þorskalýsi fer
vaxandi og ætti að geta stórauk-
ist. Sama er að segja um niður-
suðu á lifur. Söluaðilar lagmetis
segjast geta selt miklu meira
magn af niðursoðinni lifur en nu
Surimi-vinnsla á Rifi.