Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1992, Blaðsíða 22

Ægir - 01.02.1992, Blaðsíða 22
74 ÆGIR 2/92 vega 2 x 1000 faðmar af 28 mm vír um 10,3 tonn en sama lengd af 26 mm vír vegur 9,4 tonn og gæti hann því verið lengri sem, nemur minnkun þvermálsins. Hugsanlegt er að nota ofur- efnið í stað togvíra, því styrkur þess er meiri en stáls eins og eftirfarandi tafla sýnir: Þyngd/ l.OOOfm Slitþol/kg Stálvír 28 mm 4.800 kg 39.000 kg Dyneema 28 mm 870 kg 46.000 kg • Heildarsjóþungi venjulegs tog- aratrolls með 2 x 1000 föðmum af 28 mm togvír er alls um 17 tonn sem gróflega skiptast þannig: Troll 1,3 tonn Grandarar 0,9 tonn Hlerar 5,5 tonn Togvírar 9,3 tonn Hér sést að hlerar og togvírar eru um 86% af heildarþyngdinni, og Ijóst að hlerar og togvírar vega þungt á togvindum þegar hífa þarf inn allan þennan þunga auk við- náms hleranna í upphífingu. Til samanburðar má geta þess að Nýsjálendingar sem fiska Orange Roughy eða búrfisk á 300-900 faðma dýrpi, nota 26 mm togvír og 21" bobbinga. Trollin eru aftur á móti ívið stærri en okkar og möskvastærð fremri hluta einnig, frá 240-300 mm. Öflugustu skipin eru með um 2200 faðma af vír á hvorri tromlu sem gefur aukið svigrúm til að ná trollinu úr festu á miklu dýpi. Víra- hlutfall er á bilinu 1:1,6 tiI 1:2. Ég hef hér farið yfir þá mögu- leika sem nýst gætu til þess að sem flestir togarar hafi tök á að fiska dýpra en nú er, en augljóst er að reyna þarf togbúnaðinn við raun- verulegar aðstæður. Þannig fæst úr því skorið hvort veiðihæfni vörpunnar haldist svipuð, því hún er forsenda þess að búnaðurinn komi að notum við veiðar á öllum helstu fisktegundum sem veiddar eru við Island. Tvískipa veiðar með botnvörpu Hér á undan hefur verið rakið hvernig hugsanlega megi létta hlera botnvörpu fyrir einn togara, en einnig er hægt að auðvelda þær veiðar þegar tvö skip draga eitt troll. Þetta á sérstaklega við um minni togarana. Þessi veiðiað- ferð hefur oftast verið nefnd tveggja báta veiðar eða tveggja skipa veiðar. Þar sem orðalag þetta er frekar óþjált í munni ætla ég að breyta því örlítið og kalla aðferðina tvískipaveiðar. Minni skip frá Vestmannaeyjum hafa notað þessa veiðiaðferð með nokkuð góðum árangri og víða erlendis er hún mikið notuð, sér- staklega ef veiðarfæri eru stór en skipin tiltölulega lítil. í sjálfu sér er ekki nóg að hafa tvö skip, því einnig þarf að vera hægt að slaka trollinu niður á það dýpi sem um hefur verið rætt. Þá dugar engan veginn að hvort skip sé með 1200 faðma af vír því hann þarf að vera allt að tvöfalt lengri en dýpið og jafnvel enn lengri við tveggja báta veiðar. Til að bæta úr þessu mætti tengja saman báða togvírana hjá hvoru skipi, þannig að þegar t.d. stjórnborðsvírnum hefur verið slakað út þá er bakborðsvírnum líka slakað út, uns hæfileg lengd er komin. Það sem vinnst með tvískipa veiðum er eftirfarandi: • Með tveimur skipum nánast tvöfaldast togkrafturinn. • Vírar og spil nýtast til fullnustu með þessari aðferð og að sögn togaraskipstjóra er tenging tog- víranna í köstun aðeins spurn- ing um útfærslu. • Toghlerar eru ekki notaðir við tvískipa veiðar því skipin glenna vörpuna í sundur og halda henni í veiðanlegu ástandi. • Stærð vörpunnar má tvöfalda eða þrefalda ef þörf krefur, því nægilegur togkraftur er fyrir hendi. Þó er kannski meiri ástæða til að stækka bobbinga eða grjóthopparalengju trolls- ins, því þar safnast fiskurinn saman eftir að hafa verið smal- að inn að trollinu með gröndur- unum. Þessu til áréttingar vil ég benda á reynslu útgerðarmanns og skip- stjóra frystitogarans Venusar frá Hafnarfirði. Þeir fóru fyrir nokkr- um árum í veiðiferð með japönsk- um verksmiðjutogara sem stund- aði grálúðuveiðar í rannsóknar- skyni fyrir grænlensku heimastjórn- ina. Þar kom í Ijós að notuð var mun lengri gúmmíbobbingalengja en venjan er á íslenskum trollum. Trollið sjálft var þó ekki mikið stærra að ummáli en þau íslensku en vængir lengri og efnismeiri. Það sem gerði gæfumuninn var að togarinn hafði nægan togkraft til að draga trollið og veiddi mun meira en skipstjóri Venusar taldi að hann fengi í þá vörpu sem hann notar við svipaðar aðstæður við ísland. Til samanburðar skal þess getið að bobbingalengja íslensks togara- trolls er 18,3 metrar en lengja jap- anska trollsins var 70 metra löng- Þetta fyrirkomulag gæti hentað flestum minni togaranna við tví- skipaveiðar að því gefnu að spil skipanna ráði við að hífa inn vírinn. Að áliti sérfræðinga í tog- vindubúnaði er þetta vel mögulegt ef spilin eru í góðu ástandi og með svipaðan hífikraft í hvoru skipi fyrir sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.