Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Side 3
TIMARIT LOGFRÆÐINGA
1. hefti 1963.
\Jaídiniar ^aíobi.
STJÓRNARLÖG NÝJA-ÍSLANDS
Aðrar skyldar íslenzkar erfðir.
Mörg séreinkenni hinna gömlu þjóðflokka Norðurlanda
má finna, þar sem þeir settust að. í flestum tilvikum
komu þeir að hyggðum löndum, og voru stundum háðar
orrustur áður en þeir tóku við. Hér nægir að benda á
tvær víkingaferðir.
P
Farið var suður og austur að Garðaríki og jafnvel
sunnar og voru þar fremstir í flokki: Hrörekur (Rurik),
Ingvar (Igor), Höskuldur (Askold), Dýir (Dir) og Frið-
leifur (Frelaf). Hér má einnig benda á kvenmannsnafnið
Helga, nú Olga.
Gyðingur að nafni Ibrahim ritaði um þessa menn um
miðja tíundu öld á þessa leið:
„Menn frá Norðurlöndum, og á meðal þeirra voru
Róðsmenn, hafa lagt undir sig slavnesk héruð og búið
meðal slavneskra þjóða. Og ekki nóg með það, hekl-
ur hafa þeir blandazt þeim svo gersamlega, að þeir
hafa tekið upi> tungu þeirra.“
Annar vikingahópur hertók Normandiu, og var Göngu-
Hrólfur leiðtogi þeirra. Vilhjálmur konungur, sem sigr-