Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Page 36
2. Að þingið sé almennt .þeirrar skoðunar, að sækja
beri menn fyrir afbrot í því landi, sem það er talið vera
framið í, en þó mætti fullnægja dómi í vissum tilfellum
í heimalandi þeirra, svo og
3. Að skipuð verði nefnd til að athuga mál þessi
nánar og gera tillögur um einstök atriði þeirra fjæir
næsta þing.
Þá er þess að geta, að i sambandi við þingið var þátt-
takendum boðið í hinar ágætustu ferðir og mannfagnaði.
Þeim var boðið í ferð um Haag og heimsókn í friðar-
iiöllina þar, í ferð um Rotterdam og siglingu um hina
risavöxnu höfn, í fagnað borgarstjórnar í Haag í hinu
fornglæsta ráðhúsi borgarinnar og seinast en ekki sízt
i móttöku rikisstjórnar Hollands í listasafni ríkisins i
Amsterdam. Hér buðust þátttakendum tækifæri til að
ræða saman og kvnnast nokkuð. Fyrir héraðsdómanda
frá Revkjavik a. m. k. var það alveg einstakt að geta í
einu og sama vetfangi að heita má leitað fróðleiks og
fræðslu um dómaskipan og réttarfar einstakra ríkja i
viðræðum við t. d. héraðsdómara frá Rremen, Edinborg,
Lyon og Vín, yfirráttardómara frá Haag, París og Vi-
borg svo og hæstaréttardómara frá Dublin og Colombo.
Segja má, að alþjóðasamband dómara beri nú nokk-
urt svipmót Miðjarðarhafslanda, enda eru þau 5 af 12
íullgildum meðlimum þess. Hefir nokkur áhugi vaknað
meðal dómara í Norður- og Vestur-Evrópu fyrir því að
þeir láti málefni sambandsins sig meira varða en verið
iiefir hingað til. Enn sem komið er, sýnist ekki vera
grundvöllur fvrir því að Dómarafélag íslands gerist með-
iimur sambandsins, en það ætti að fylgjast með hverju
fram vindur í málum þess og þróun. Og ég er þess full-
viss, að enginn íslenzkur dómari vrði fj'rir vonbrigðum
ef hann mætti á næsta alþjóðaþingi dómara. Það verður
haldið árið 1968, en staður er enn eigi ákveðinn.
34
Tímarit lögfræðinga