Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Page 37

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Page 37
ÞRÓUN KOSNINGARRÉTTAR Á ÍSLANDI 1874-1963. I grein þessari eru rakin lagaákvæði, sem gilt hafa á íslandi frá 1874 um kosningarrétt til Alþingis. Einnig eru birtar tvær töflur, og sýnir önnur þeirra (tafla I), hversu stór hundraðshluli þjóðarinnar hefur haft kosningarrétt á þessu tímabili, svo og hversu stór hundraðshluti þeirra, sem kosningarréttar nutu, hafa greitt atkvæði. Hin taflan (lafla II) snertir þróun kosningarréttarins, að vísu ekki, eða a.m.k. ekki beint, en hún sýnir fylgi stjórnmála- flokka á íslandi frá 1927. Hefur þótt rétt að láta hana fylgja hér til almenns fróðleiks. Töflur þessar háðar hef- ur Ólafur R. Grimsson tekið saman, en hann stundar nám í stjórnmálafræði við Háskólann í Manchester. Um þetta .efni hefur dr. Þorsteinn Þorsteinsson fjrrr- verandi hagstofustjóri ritað i Almanak Hins Islenzka Þjóðvinafélags árið 1938, hls. 76, sbr. einkum hls. 81—85. Hefur hér einnig verið stuðzt við þá ritgerð. Fvrst voru sett lög um kosningar til Alþingis, og þá um leið kosningarrétt, í Alþingistilskipuninni frá 8. marz 1843. (Tilskipun um stiftun sérlegrar ráðgefandi sam- komu fyrir ísland, er á að nefnast Alþingi). Eru skil- yrðin fvrir kosningarrétti talin í 3. gr. tsk. Skilyrðin eru óneitanlega ströng, enda sættu þau þegar í upphafi mikilli gagnrýni. Voru þau rýmkuð með tilskipun 6. jan- úar 1857. (Tilskipun um brevtingu á tilskipun 8. marz- mánaðar 1843 viðvíkjandi kosningum til Alþingis). Ákvæði þessarar tilskipunar voru síðan tekin efnislega óbrevtt upp í 17. gr. stjórnarskrárinnar frá 5. janúar 1874 Tímarit lögfræðinga 35

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.