Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Síða 39

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Síða 39
ár. Við landkjörna þingmenn er átt, þegar rætt er um „kosningarrétt til hlutbundinna kosningar" í síðustu mgr. 10. gr. stjórnskipunarlaga nr. 12/1915, sbr. bls. 41 hér á eftir, en hins vegar við kjördæmakosna þingmenn, þegar rætt er um „kosningarrétt við óhlutbundnar kosn- ingar til Alþingis . . . .“ í upphafi sömu greinar (hls. 39). Við landkjörna þingmenn er einnig átt í síðustu mgr. 29. gr. stjórnarskrárinnar nr. 9/1920, shr. bls. 42 hér á eftir. Landkjör var afnumið með stjórnskipunarlögum nr. 22/ 1934 (Einar Arnórsson: Réttarsaga Alþingis, bls, 599 og 601). Verða nú ákvæði um kosningarréttarskilyrði rakin. Stjórnarskrá um hin sérstaklegu málefni íslands, 5. janúar 1874, 17. gr.: Kosningarrétt til Alþingis hafa: — a. allir bændur, sem hafa grasnvt og gjalda nokkuð til allra stétta; þó skulu þeir, sem með sérstaklegri ákvörðun kynni að vera undan- skildir einhverju þegnskvldugjaldi, ekki fvrir það missa kosningarrétt sinn; — b. kaupstaðarborgarar, ef þeir gjalda til sveitar að minnsta kosti 8 kr. (4 rd.) á ári; — c. þurrabúðarmenn, ef þeir gjalda til sveitar að minnsta kosti 12 krónur (6 rd.) á ári; — d. embættismenn, hvort heldur þeir hafa konunglegt veitingarbréf eða þeir eru skipaðir af því yfirvaldi, sem konungur hefur veitt heim- ild til þessa; — e. þeir, sem tekið hafa lærdómspróf við háskólann, eða embættispróf við prestaskólann í Reykja- vík, eða eitthvert annað þess háttar opinbert próf, sem nú er eða kann að verða sett, þó ekki séu þeir í embætt- um, ef þeir eru ekki öðrum háðir. — Þar að auki getur enginn átt kosningarrétt, nema hann sé orðinn fullra 25 ára að aldri, þegar kosningin fer fram1), hafi óflekkað 1) Liðir a—c, svo og upphaf annarrar málsgreinar, er sam- hljóða 1. gr. 1. um kosningar til Alþingis nr. 16, 14. september 1877 (að undanskildum svigagreinunum). Tímarit lögfræðinga 37

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.