Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Síða 40
mannorð2), hafi veriö heimilisfastur í kjördæminu eitt
ár3), sé fjár sins ráðandi4 5) og honum sé eklci lagt af
sveit eða, hafi hann þáð sveitarstyrk, að hann þá hafi
endurgoldið hann eða lionum hafi verið gefinn hann
upps).
Stjórnskipunaxlög um breytinga á stjórnarská um hin
sérstaklegu málefni Islands 5. janúar 1874, nr. 16, 3.
október 1903:
6. gr. (17. gr. stjórnarskrárinnar).
Kosningarrétt til alþingis hafa, a) allir bændur, sem
hafa grasnyt og gjalda nokkuð til allra stétta, þó skulu
þeir, er með sérstakri ákvörðun kynnu að vera undan-
skildir einhverju þegnskyldugjaldi, eigi fyrir það missa
kosningarrétt sinn, b, allir karlmenn, sem ekki eru öðr-
um háðir sem hjú, ef þeir gjalda að minnsta kosti 4 kr.
á ári sem aukaútsvar, c, embættismenn, hvort heldur
þeir hafa konunglegt veitingarhréf eða eru skipaðir af
yfirvaldi þvi, er konungur hefur veitt heimild til þess,
d, þeir, sem tekið hafa lærdómspróf við háskólann, eða
við prestaskólann eða læknaskólann i Reykjavik, eða eitt-
hvert annað þess háttar opinbert próf, sem nú er eða
kann að verða sett, þó ekki sé þeir í embættum, ef þeir
2) 2. gr. sömu laga: „Enginn getur átt kosningarrétt, nema
hann hafi óflekkað mannorð, en sá verður eigi talinn hafa óflekk-
að mannorð, sem sekur er orðinn að lagadómi um nokkurt það
verk, sem svívirðilegt er að almenningsáliti, nema þvi aðeins,
að hann hafi fengið uppreist æru sinnar, samkvæmt tilskipun
12. marz 1870."
3) 5. gr. sömu laga: „Enginn getur átt kosningarrétt, nema
hann, þá er kosningin fer fram, hafi verið heimilisfastur í kjör-
dæminu eitt ár. Sá, sem hefur fast aðsetur á fleiri stöðum, segir
sjálfur til, á hverjum staðnum hann vilji neyta kosningarrétt-
ar síns."
4) 3. gr. sömu laga: „Enginn getur átt kosningarrétt, sem
eigi er fjár síns ráðandi, eða sem orðinn er gjaldþrota.
5) 4. gr. sömu laga: „Enginn getur átt kosningarrétt, sem
þiggur af sveit eða hefur þegið sveitarstyrk, nema hann sé annað-
hvort endurgoldinn, eða honum haíi verið gefinn hann upp."
38
Tímarit lögfræðinga