Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Side 41

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Side 41
eru ekki öðrum liáðir sem lijú. — Enginn getur átt kosn- ingarrétt, nema hann sé orðinn fullra 25 ára að aldri, þegar kosningin fer fram1), hafi óflekkað mannorð-), hafi verið heimilisfastur í kjördæminu eitt ár3), sé fjár síns ráðandi4), og honum sé ekki lagt af sveit, eða, hafi hann þegið sveitarstvrk, að hann þá hafi endurgoldið hann eða honum verið gefinn liann upp5). Með lögum má afnema aukaútsvarsgreiðsluna eftir stafl. h. sem skilyrði fyrir kosningarrétti. Stjómskipunarlög nr. 12, 19. júní 1915: 10. gr. Kosningarrétt við óhlutbundnar kosningar til Al- þingis hafa karlar og konur, sem fædd eru hér á landi eða hafa átt hér lögheimili síðastliðin 5 ár og eru 25 ára, er kosningin fer frarn0); þó getur enginn átt kosningarrétt, 1) 1. gr. laga um kosningar til alþingis iyv-18r3roktóber 1903: „Kosningarrétt til alþingis hafa allir þeir, sem stjórnarskrá um hin sérstöku málefni Islands veitir rétt til kosninga, með þeim nánari ákvörðunum, sem eru teknar fram hér á eftir." 2) 2. gr. sömu laga: „Enginn getur átt kosningarrétt, nema hann hafi óflekkað mannorð, en sá verður eigi talinn hafa óflekk- að mannorð, sem sekur er orðinn að lagadómi um nokkurt það verk, sem svívirðilegt er að almenningsáliti, nema því aðeins, að hann 'hafi fengið uppreist æru sinnar.“ 3) 5. gr. sömu laga: „Enginn getur átt kosningarrétt, hafi hann eigi, þá er kosningin fer fram, haft lögheimili í kjördæm- inu eitt ár. Sá, sem hefur heimilisfang víðar en á einum stað, segir sjálfur til, á hverjum staðnum hann vill neyta kosningar- réttar síns.“ 4) 3. gr. sömu laga: „Enginn getur átt kosningarrétt, sé hann eigi fjár síns ráðandi, eða sé bú hans undir skiptameðferð sem gjaldþrota.“ 5) 4. gr. sömu laga: „Enginn getur átt kosningarrétt, sem þiggur af sveit eða hefur þegið sveitarstyrk, nema hann sé annað- hvort endurgoldinn eða eftirgefinn. 6) Sbr. 1. mgr. 1. gr. 1. nr. 28, 3. nóvember 1915: „Með þeim takmörkunum, sem hér fara á eftir, hafa kosningarrétt við óhlutbundnar kosningar til Alþingis allir karlar og konur, sem fædd eru á Islandi, eða hafa átt þar lögheimili siðastliðin 5 ár, Tímarit lögfræðinga 39

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.