Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Qupperneq 42
nema liann hafi óflekkað mannorð1), hafi verið heimilis-
fastur í kjördæminu 1 ár2) og sé fjár síns ráðandi3), enda
ekki í skuld fvrir þeginn sveitarstvrk4). Ennfremur eru
þau skilvrði sett, að hinir nýju kjósendur, konur og þeir
karlmenn, er ekki hafa kosningarrétt samkvæmt stjórnar-
skipunarlögunum frá 1903 fái ekki rétt þann, er hér ræðir
um, öll í einu, heldur þannig, að þegar semja á alþingis-
kjörskrá í næsta sinn, eftir að lög þessi eru komin í gildi,
skal setja á kjörskrána þá nýja kjósendur eina, sem eru
40 ára eða eldri, og að öðru leyti fullnægja hinum al-
mennu skilvrðum til kosningarréttar. Næsta ár skal á
sama hátt bæta við þeim nýju kjósendum, sem eru 39
ára, og svo framvegis, lækka aldurstakmarkið um eitt
ár i hvort sinn, lil þess er allir kjósendur, konur og karl-
ar, hafa náð kosningarrétti, svo sem segir í upphafi þess-
arar greinar3).
hafa óflekkað mannorð, og eru 25 ára að aldri, þegar kosning
fer fram.“
1) Sbr. 2. gr. s. 1.: „Enginn verður talinn hafa óflekkað mann-
orð, sem sekur er orðinn að lagadómi um nokkurt það verk, sem
svívirðilegt er að almenningsáliti, nema þvi að eins, að hann
hafi fengið uppreist æru sinnar.“
2) Sbr. 5. gr. s. 1.: „Enginn getur átt kosningarrétt, hafi
hann eigi, þá er kosningin fer fram, verið heimilisfastur í kjör-
dæminu eitt ár. Sá, sem hefur heimilisíang víðar en á einum
stað, segir sjálfur til, á hverjum staðnum hann vill neyta kosn-
ingarréttar síns.
3) Sbr. 3. gr. s. 1.: „Enginn getur átt kosningarrétt, sé hann
eigi fjár síns ráðandi eða sé bú hans undir skiptameðferð sem
þrotabú."
4) Sbr. 4. gr. s. 1.: „Enginn getur átt kosningarrétt, sem þigg-
ur af sveit, eða hefur þegið sveitarstyrk, nema hann sé annað-
hvort endurgoidinn eða eftirgefinn."
5) Sbr. síðari hluta 1. gr. s.l.: „Þá öðlast konur og þeir karl-
menn, sem ekki hafa haft kosningarrétt stöðu sinnar vegna
samkvæmt stjórnarskipunarlögunum frá 1903, ekki öll í einu
kosningarréttinn, heldur þannig, að þegar samdar eru alþingis-
kjörskrár fyrsta sinn eftir að lög þessi öðlast gildi, skal setja
á kjörskrá þá eina af þessum nýju kjósendum, sem eru 40 ára að
40
Tímcirit lögfræðinga