Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Page 43
Nú hafa hjón óskilinn fjárhag, og missir ekki konan
kosningarrétt sinn fvrir þvi* 1).
Með sömu skilvrðum hafa karlar og konur, sem eru
35 ára eða eldri, kosningarrétt til hlutbundinna kosninga.
Að öðru leyti setja kosningarlög nánari reglur um kosn-
ingar og um það, í hverri röð varamenn skuli koma í
stað aðalmanna í efri deild2).
Lög nr. 27, 3. nóvember 1915, 1. gr. i. f. (Otsvars-
skvlda afnumin sem skilvrði kosningarréttar, sbr. 6. gr.
stjskpl. nr. 16/1903 i. f.):
Útsvarsskylda er úr lögum numin sem skilyrði fyrir
kosningarrétti, og ber þvi ekki að telja þá menn nýja
kjósendur, sem fullnægt hafa kosningarskilyrðum, þegar
lög þessi öðlast gildi, að öðru leyli en þvi, að greiða nægi-
lega hátt útsvar.
Stjórnarskrá konungsríkisins íslands nr. 9, 18. maí 1920:
29. gr. Kosningarrétt við kosningar til Alþingis í sér-
stökum kjördæmum hafa allir, karlar og konur, sem
eru 25 ára eða eldri, er kosning fer fram, og hafa ríkis-
borgararétt hér á landi og verið búsettir í landinu síð-
ustu fimm árin áður en kosningar fara fram. Þó getur
enginn átt kosningarrétt, nema hann hafi óflekkað mann-
aldri eða eldri. Næsta ár skal á sama hátt bæta við þeim nýý
um kjósendum, sem eru 39 ára, og þannig framvegis lækka
aldurstakmarkið um eitt ár í hvert skipti, þar til komið er niður
í 25 ára aldur."
1) Síðari hluti 3. gr. s. 1.: ,,Nú hafa hjón óskilinn fjárhag,
og missir konan ekki kosningarrétt sinn fyrir því."
2) 58. gr. s. 1.: „Við hlutbundnar kosningar, er fram eiga að
fara um land allt i einu lagi á þingmönnum til efri deildar Al-
þingis, eiga kosningarrétt og kjörgengi allir hinir sömu, konur
og karlar ,sem kosningarrétt hafa og kjörgengi samkvæmt 1.—6.
gr., ef náð hafa fullum 35 ára aldri, þá er kosning fer fram, en
að öðru leyti með sömu skilyrðum."
Tímarit lögfræðinga
41