Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Side 44
orð1), hafi verið heimilisfastur í kjördæminu 1 ár2) og
sé fjár sins ráðandi3), enda ekki í skuld fj'rír þeginn
sveitarstyrk4),
Gift kona telst fjár síns ráðandi, þótt hún eigi óskilið
fjárlag með manni sinum5).
Með sömu skilyrðum hafa karlar og konur, sem eru
35 ára eða eldri, kosningarrétt til hlutbundinna kosninga
um land allt. Að öðru leyti setja kosningalög nánari regl-
ur um kosningar og um það, í hverri röð varamenn skuli
koma í stað aðalmanna i efri deild.
Stjórnskipunarlög nr. 22, 24. marz 1934. Um breyt-
ingu á stjórnarskrá konungsríkisins íslands 18. mai 1920:
4. gr. — 29. gr. stjórnarkrárinnar, sem verður 28. gr.,
verði þannig:
Kosningarrétt við kosningar til Alþingis hafa allir, karl-
ar sem konur, sem eru 21 árs eða eldri, þegar kosning fer
fram, liafa ríkisborgararétt hér á landi og liafa verið
húsettir i landinu síðustu fimm árin áður en kosning fer
fram. Þó getur enginn átt kosningarrétt, nema hann hafi
óflekkað mannorð og sé fjárráður.
Gift kona telst fjár síns ráðandi, þótt hún eigi óskilið
fjárlag með manni sínum. t
1) 1. gr. 1. nr. 12, 18. mai 1920 um breytingu á 1. gr. 1. 28,
3. nóv. 1915:
1. gr. (1. gr. laga nr. 28, 3. nóv. 1915). „Með þeim takmörkunum,
sem hér fara á eftir, hafa kosningarrétt til Alþingis við kosn-
ingar í sérstökum kjördæmum, allir karlar og konur, sem eru
25 ára eða eldri þegar kosning fer fram, hafa óflekkað mann-
orð, hafa ríkisborgararétt hér á landi og hafa verið búsettir
í landinu síðustu fimm árin áður en kosningar fara fram.“
2) 5. gr. 1. 28/1915, sbr. hér að framan.
3) 3. gr. 1. 28/1915.
4) 4. gr. 1. 28/1915.
5) 3. gr. 1. 28/1915 (siðari hluti).
42
Tímarit lögfræðinga