Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Page 45

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1963, Page 45
Ivosningalög setja að öðru leyti nánari reglur um al- þingiskosningar.1) Þessi ákvæði hafa siðan haldizt óbreytt, sbr. 33. gr. stjórnarskrár Lýðveldisins íslands nr. 33, 17. júní 1944 og 1. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 52, 14. ágúst 1959. Rýmkun kosningarréttar var lengi pólitiskt baráttumál, og hér að framan hefur það verið rakið, hvernig því máli hefur skilað áfram, eins og það kemur fram í lög- um tímabilið 1874—1963. Skilyrðunum hefur farið smá fækkandi og jafnframt hefur fólki á kjörskrá fjölgað. Til frekari glöggvunar skal nú gefið stutt yfirlit um það, hver hafa orðið afdrif ákvæða stjórnarskrárinnar frá 1874 um skilyrði fyrir kosningarrétti. 1. Bændur, sem hafa grasnyt og gjalda nokkuð til allra stétta (þ. e. einhvern beinan skatt). Afnumið með stjórnskipunarlögum nr. 12/1915. 2. Kaupstaðaborgarar, sem gjalda lil sveitar a.m.k. 8 kr. Rýmkað með stjórnskipunarlögum nr. 16/1903. Fellt niður með stjórnskipunarlögum nr. 12/1915 (útsvars- 1) Lög nr. 18, 25. janúar 1934 um kosningu til Alþingis, 1. —3. gr.: 1. gr. Kosningarrétt við kosningar til Alþingis eiga allir, karl- ar og konur, sem 1. eru 21 árs eða eldri, þegar kosning íer fram, 2. eiga ríkisborgararétt hér á landi, 3. hafa verið búsettir hér á landi siðustu 5 árin áður en kosning fer fram, 4. hafa óflekkað mannorð og 5. eru fjárráðir. 2. gr. Enginn telst hafa óflekkað mannorð, sem er sekur eftir dómi um verk, sem er svívirðilegt að almenningsáliti, nema hann hafi fengið uppreist æru sinnar. 3. gr. Gift kona telst fjárráða, þótt hún eigi óskilið fjárhag með manni sínum. Maður telst f járráður, þó að bú hans sé undir gjaldþrotaskiptum. Tímarit lögfræðinga 43

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.