Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Side 13
Reykjavík, ef sérstaklega stendur á, t. d. hefur dómþing
verið lialdið á Akureyri.
Dómendur Hæstaréttar voru í upphafi Kristján Jónsson
dómstjóri ,Eggert Briem, Halldór Danielsson, Lárus H.
Bjarnason og Páll Einarsson. Auk þeirra og hinna fimm,
sem nú skipa Hæstax-étt, hafa fastir dómendur verið þessir:
Dr. Einar Arnórsson, dr. Þórður Eyjólfsson, Árni Tryggva-
son, Jón Ásbjörnsson, Jónatan Hallvarðsson og Lárus Jó-
hannesson. Af fyrrverandi hætaréttardómurum eru nú
þrir á lifi, þeir dr. Þórður Eyjólfsson, Árni Tryggvason
og Lárus Jóhannesson. Er það okkur sérstök ánægja, að
fveir þeirra eru viðstaddir hér i dag. Árni Tryggvason er
bundinn við störf sín erlendis. Lengst liafa starfað við
Hæstarétt þeir Gizur Bergsteinsson, dr. Þórður Eyjólfsson
°g Jónatan Hallvarðsson. Gizur hefur nú verið hæstaréttar-
dóniari í tæp 35 ár, starfstími dr. Þórðar var rúm 30 ár
og Jónatans nær aldai-fjórðungur.
Hæstaréttarritarar liafa verið dr. Björn Þórðarson, Sig-
fús M. Johnsen, IJákon Guðmundsson og nú Sigurður Lín-
dal. Fyrsti hæstaréttarritarinn er nú látinn. Er ánægjulegt
að sjá liina hér lijá okkur i dag.
Við Landsyfirdóminn störfuðu ekki fastir löglærðir
luálflvtjendur fvrr en árið 1858, er hoðið var, að við hann
skyldu settir tveir málflulningsmenn, er hefðu einkarétt
til málflutnings þar og tækju laun úr dómsmálasjóðnum.
Einkaréttúr þeirra var numinn úr gildi árið 1905. I hæsta-
i'éttarlögunum frá 1919 voru ákvæði um málflutnings-
uienn, svipuð þeini og nú gilda um Iiæstaréttarlögmenn,
eu þeir þurfa að fullnægja ýmsuni skilyrðum til þess að
öðlast starfann, svo sem að hafa staðizt prófraun fvrir
dóminum. Hæstaréttarlögmenn eru nú um 100. Málflutn-
uigur fyrir Landsyfirdóminum var skriflegur, en frá upp-
hafi hefur málflutningur fyrir Hæstarétti verið munnlegur.
Voru um þetta skiptar skoðanir í öndverðu. Félag mál-
Hutningsmanna taldi munnlegan málflutning sjálfsagðan,
eu dómendur Landsyfirdómsins lögðu til, að liann yrði
limarit lögfræðinga
11