Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Page 24
réttarlögmann eða héraðsdómara, sem fullnægi skilyrð-
um til að vera skipaður dómari í Hæstarétti, ef liæsta-
réttardómari víkur sæti i einstöku máli.
Með hæstaréttarlögunum frá 1919 var stofnað embætti
hæstaréttarritara. Hann skal vera lögfræðingur og full"
nægja almennum dómaraskilyrðum. Er núverandi liæsta-
réttarritari hinn þriðji, sem því embætti gegnir.
Fasth- dómendur Hæstaréttar hafa ekki aðrir verið skip'
aðir, en þeir finun, sem i upphafi tóku sæti i dóminum,
og þeir þrír, sem nú eiga þar sæti. Það er oss gleði að sjá
hér viðstaddan í dag einn þeirra dómenda, sem fyrstir
voru skipaðir í dómarasæti, herra hæstaréttardómara Pál
Einarsson. Hinir fjórir, þeir Kristján Jónsson, Halldór
Daníelsson, Eggert Briem og Lárus II. Bjarnason, eru
allir látnir. Bið ég viðstadda að votta minningu þeirra
virðingu með því að rísa úr sætum.
Þá er oss einnig ánægja að sjá hingað komna á 25 ára
afmæli dómsins prófessor Ólaf Lárusson, sem sæti átti í
Hæstarétti á fyrsta dómþingi lians vegna fjarveru eins
hinna skipuðu dómenda, fyrsta hæstaréttarritarann, dr.
juris Björn Þórðarson, hæstaréttarlögmann Lárus Fjeld-
sted, sem gegnt hefur lögmannsstarfi við Hæstarétt óslitið
frá stofnun hans, svo og þá málflytjendur, er fyrstir fluttu
mál munnlega fyrir Iiæstarétti, herra forseta Islands Svein
Björnsson, sem sýnt hefur Hæstarétti þann heiður að vera
viðstaddur athöfn þessa, og hæstaréttarlögmann Eggert
Claessen.
Hæstaréttarlögmcnn hafa þeir einir getað orðið, sem til
þess fengu leyfi dómsmálaráðlieri'a, enda fullnægðu þe*1'
ýmsmn lögmæltum skilyrðum, þar á meðal að liafa Jjreytt
og staðizt prófraun fyrir Hæstarétti. Alls munu 29 lög"
menn hafa öðlast leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti,
og eru 23 þeirra nú starfandi við dóminn.
Frá því að Hæstiréttur var stofnaður, hefur málum,
sem þar hafa verið dæmd, farið fjölgandi með ári hverju,
þar til nú á styrjaldarárunum, að tala þeirra hefur staðið
22
Tímarit lögfræðin(Ja