Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Blaðsíða 28
ÁVARP
Finns Jónssonar dómsmálaráðherra 16. febrúar 1945
Herra forseti, virðulegu dómendur og gestir.
Ég vil á þessu 25 ára afmæli Hæstaréttar f. h. ríkis-
stjórnarinnar færa Hæstarétti hinar heztu árnaðaróskir.
Þetta eru merk tímamót í sögu Hæstaréttar og þá ekki
síður í sögu þjóðarinnar, þvi á iþeim degi, er Hæstiréttur
var fluttur inn í landið, var náð merkum áfanga í iþeirri
sjálfstæðisharáttu, sem nú hefur verið til lykta leidd með
endurreisn liins íslenzka lýðveldis á Þingvöllum á fæð-
ingardegi Jóns Sigurðssonar forseta hinn 17. júni síðast-
liðinn.
f okkar litla þjóðfélagi er löggjafarstarfið að sjálfsögðu
mjög mikilsvert, en hitt er þá heldur ekki síður mikilvægt,
liversu með dómsvaldið er farið. Svo má að orði kveða,
að þessar tvær stofnanir, Alþingi og Hæstiréttur, séu hyrn-
ingarsteinar þjóðfélagsins. Ef önnur hvor hregst, þá er
voði vís, og hættan er sízt minni í litlu þjóðfélagi en í
stóru.
Það er því full nauðsyn að húa að Hæstarétti svo sem
hezt má verða og okkar litla geta leyfir.
Siðan Hæstiréttur tók til starfa, hafa orðið miklar hreyt-
ingar með þjóð vorri. Störfin hafa aukizt og markfaldazt
og er því hrýn þörf bæði aukinna starfskrafta og hættra
húsakynna.
Það er ætlun ríkisstjórnarinnar á þessum merku tíma-
mótum Hæstaréttar að sýna nokkurn lit til úrhóta. Og
mér er ánægja að geta lýst yfir því, að ríkisstjórnin hefur
ákveðið að nota heimild þá í lögum, sem lengi hefur staðið
ónotuð, um að fjölga dómendum Hæstaréttar úr 3 í 5.
26
Tímarit lögfræðinga