Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Side 31
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS
settur 16. febrúar 1920
Frásögu Morgunblaðsins 17. febrúar 1920
Einni stundu eftir liádegi í gær var hæstiréttur settur
í hinum nýju húsakynnum, sem honum eru ætluð, þar
sem áður var bæjarþingstofan. Breytingar hafa miklar
verið gerðar á húsinu og eru húsakynnin hin snotrustu og
vistlegustu, en heldur er hæstaréttarstofan lítil. Var því
eigi annað manna við þessa athöfn, en þeir, sem boðnir
voru. Má þar telja ráðherrana, forseta alþingis, erlenda
sendiherra, biskup Islands, bæjarfógeta, yfirforingja „Is-
lands Falk“, prúfessora við Háskólann og fréttaritara dag-
blaðanna. Þessir málafærslumenn voru og viðstaddir:
Sveinn Björnsson, Eggert Claessen, Lárus Fjeldsted,
Guðm. Ölafsson, Gunnar Sigurðsson, A. V. Tulinius, Jón
Áshjörnsson, Björn Pálsson, Páll Pálmason, Sigfús John-
sen.
Dómendur voru klæddir í einkenniskápur, dökkhláar
með hvítum börmum og síðar. Ólafur Lárusson prófessor
skipaði sæti Páls Einarssonar dómara. Einkenniskápa
skrifara var eins, nema ljóshlá. Málafærslumenn voru
einnig í einkenniskápum, svörtum, mcð bláum hörmum.
Þegar menn höfðu tekið sér sæti í salnum, flutti dóm-
stjóri, Eristján Jónsson ræðu. (Hún er birt hér á bls.
32—36).
Sveinn Björnsson svaraði ræðu þessari fyrir liönd mála-
færshunanna og mælti á þessa leið:
Virðulegi Hæstiréttur!
Háu dómendur!
Þessi stund mun jafnan talin merkisstund í sögu ís-
lenzku þjóðarinnar. Sú stund er æðstu dómendur í íslenzk-
um málum taka aftur sæti til dóma á fósturjörð vorri.
Timarit lögfræðinga
29