Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Page 65

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Page 65
annars áfrýjunardómstóll í málum, er dæmd höfðu verið í fjórðungsdómi og til hans var skotið. Dómar fimmtar- dóms voru endanleg úrslit máls. Framan af dæmdu greindir dómstólar einnig i málum, er kirkjuna snerti. Þó var til prestadómur, er dæmdi sakir á hendur prestum fyrir ólilýðni þeirra við biskup. Kirkjan náði þó síðar verulegum hluta dómsvaldsins í sin- ar hendur, sem kunnugt er. Þegar leið á þjóðveldisöldina gerðust að vísu ýmsir Is- lendingar handgengnir Noregskonungi og urðu þeir háðir hirðlögum, enda var rikishugtakið þá mjög á annan veg en nú og samband yfirmanna og undirmanna nánast samn- ingssamband, sbr. m. a. samband goða og þingmanna hér á landi. I svipuðu ljósi má líta á réttarstöðu handgenginna nianna og konungs, en einnig má nefna réttarstöðu vígðra nianna og kirkjunnar. Et- Islendingar gengu Noregskonungi á hönd 1262- 1264, fór hann með æðstu stjóm landsins og sérstök skipan þessara mála var fljótlega gerð, fyi-st með Járn- síðu 1271 og síðar Jónsbók 1281. Jónsbók var, eins og kunnugt er, aðallögbók Islendinga um aldaraðir. Um dómsvaldið segir m. a. i Jónsbók, Þfb. 4. kap.: „ . . . Þeir nienn, sem í lögréttu eru nefndir, skulu dæma lög um þau niál öll, er þangat eru skotin, ok þar eru löglega fram horin. Þau mál skal fyrst dæma, er til lögþingis eru lögð eptir því, sem lögbók segir ok stærst eru; eptir þat þau er þannig er stefnt ok öll þau mál, er menn leggja hendr sínar saman fyrir váttum tveimr, ef þat vitni kemr fram á þingi; síðan þau, er þar verðr á sæzt, ok smæst eru. En alt þat, er lögbók skilr eigi, þá skal þat ór hverju máli hafa, sem lögréttiunenn allir verða á eitt sáttir. En ef þá skilr á, þá ráði lögmaðr ok þeir, sem honum samþykkja, nema konungi með skynsamra manna ráði litizt annat lögligra“. Sbr. og 9. kap.: „ .. . Nú skýtr nokkurr sínu niáli undan lögmanni ok til öxarár þings, þá rannsaki lögréttumenn innvirðuliga þat mál, ok þótt þeim sýnizt Timarit lögfræðinga 63
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.