Tímarit lögfræðinga - 01.01.1971, Page 24
15.0.
Réttarsáttir — 3. maður.
15.1. 3. maður sem aðili réttarsáttar.
15.2. Áhrif réttarsáttar gagnvart 3ja manni.
15.3. Þriðjamannsloforð.
15.4. Meðalganga.
16.0.
Réttarsáttir í sambandi við fullnustugerðir o. fl.
16.1. Aðför.
16.2. Uppboðs- og skiptamál.
16.3. Kyrrsetning.
16.4. Einkarefsimál.
16.5. Mál, sem afbrigðilega meðferð hljóta.
17.0.
Formkröfur samninga.
17.1. Almennar athugasemdir.
18.0.
Utanréttarsáttir.
18.1. Almennar athugasemdir.
18.2. 2. mgr. 478. gr. dönsku réttarfarslaganna.
18.3. 3. gr. norsku aðfararlaganna.
18.4. Sænskar reglur um sáttir.
19.0.
Málskostnaður.
19.1. Almennar athugasemdir.
1.0.
1.1. Mönnum hefur lengi verið ljóst, að heppilegt og
farsælt er oft að ljúka deilumálum með sátt. Hér á landi
eru til heimildir um sáttir milli aðiia deilumáls, áður en
Hlfljótslög voru sett (Gullþ.saga, kap. 15).
Hefur þvi verið haldið fram, að ekki hafi verið óalgengt,
að aðilar hafi gert sáttir i mikilvægustu málum, án þess
að hlutlaus maður liefði þar milligöngu og án þess að
kynna efni sáttarinnar opinberlega (sbr. Historisk inclled-
ning til den gamle og nye Islandske rættergang, bls. 57).
Eftir að dómstólum var kom á fót hér á landi, er talið,
18
Tímarit lögfræðinga