Tímarit lögfræðinga - 01.01.1971, Blaðsíða 59
hættulegri fyrir hagsmuni 3ja manns, ef gert er ráð fyrir
því, að þær fyrrnefndu séu oftar efnislega rangar, og vera
kann, að hættan sé enn aukin, ef unnt er að gera réttar-
sáttir um viss forgangsveð.
Ofangreind sjónarmið geta þó ekki valdið þ\á, að réttar-
sáttir um slik forgangsveð séu óheimil, án þess að beint
lagaboð um það sé fvrir hendi. Svo sem að framan er
rakið, stuðla lögin að réttarsáttum, þvi að kostir við þær
eru fleiri en gallar, enda þótt ljóst sé, að sáttir geta ávallt
haft i för með sér vissar hættur. Verður í þvi samhandi
að teljast eðlilegt að miða lagareglur um réttarsáttir við
visst „normal“-ástand í stað þess að byggja á því, að verið
sé að ganga á rétt 3ja manns.
Ef aðilar einkamáls eru ákveðnir i þvi að ganga á rétt
3ja manns, eru möguleikar til slíks nær ótakmarkaðir.
Svipað á og við um dóma. Otilokað er fyrir dómara einka-
máls að ná efnislega réttri niðurstöðu, ef aðilar vilja
það ekki sjálfir. Hins vegar 'hafa lögin önnur úrræði til
þess að vernda rétt 3ja manns, þegar hann telur á rétt
sinn hallað og má þvi segja, að bann við sáttum um for-
gangsveð sé algerlega þarflaust. Ekki er heldur unnt að
fallast á, að efnisskilyrðum laga þurfi að vera fullnægt,
til þess að sátt um lögveð sé gild milli aðila. Dómur um
lögveð hefur fullt gildi milli aðila deilumáls, enda þótt
hann sé rangur að efni til og það sama verður að gilda
um réttarsátt. Af framangreindu leiðir, að telja verður
réttarsáttir um veðréttindi og viðurkenningarkröfur al-
mennt leyfilegar. Hins vegar er 3ji maður að sjálfsögðu
eklci bundinn við slíkan dóm eða sátt. Oftast mundi reyna
á hugsanlegan betri rétt 3ja manns í sambandi við frinn-
vörp að úthlutunargerðum, t. d. við skipti á sumum dán-
arbúum, gjaldþrot, uppboð o. s. frv. lírræði 3ja manns
væri þá að mótmæla frumvarpinu og krefjast þess að
vera settur liærra i skuldaröð heldur en réttarsáttin. Yrði
þá skiptaráöandi eða uppboðshaldari að úrskurða um það
atriði og meta gildi réttarsáttar eftir þeim meginsjónar-
Tímarit lögfræðinga
53