Tímarit lögfræðinga - 01.11.1973, Qupperneq 33
Frá
Lögmaimafélagi
íslands
Hinn 13. og 14. september 1973 var haldinn fulltrúafundur stjórna lög-
mannafélaga á Norðurlöndum I Kaupmannahöfn. Undirritaðir, formaður og
ritari stjórnar Lögmannafélags íslands, sóttu fundinn af hálfu LMFÍ.
Til meðferðar á fundinum voru eftirtalin mál:
1. Greinargerðir stjórna félaganna um starfsemina síðastliðin tvö ár voru
lagðar fram. Skúli Pálsson lagði fram greinargerð LMFÍ. Voru nokkrar
umræður um þennan dagskrárlið. í skýrslum þessum vakti það sérstaka
athygii okkar íslenzku fulltrúanna, hve langt virðist vera komið á leið á
öllum hinum Norðurlöndunum það sem þeir kalla „social rettshjælp",
sem víðast hvar er innt af höndum af starfandi lögmönnum skv. tilvís-
unum félagsmálastofnana.
2. Norskur fulltrúi flutti erindi um verksvið og þýðingu lögmannafélaga í
nútíma þjóðfélagi. Fyrirlesarinn taldi, að enn mundi starfsemi lögmanna-
félaga einkum beinast að því að sinna hagsmunamálum félagsmanna
sinna enda greiddu þeir há félagsgjöld til rekstrar félaganna og tæp-
ast tímabært að auka starfsemina á öðrum sviðum. Virtust fundarmenn
almennt sammála því sjónarmiði.
3. Sænskur fyrirlesari fjallaði um dagskrárefnið: Afskipti lögmanna af
undirbúningi nýrrar löggjafar. Af erindinu og eftirfarandi umræðum var
Ijóst, að lögmenn á hinum Norðurlöndunum hafa allmikil afskipti af
löggjafarstarfsemi, enda leggja þeir áherslu á að taka þátt í slíku starfi
t. d. með því að hafa starfandi innan sinna vébanda nefndir, sem fylgj-
ast með, vinna að og gefa umsagnir um löggjafarmál á hinum ýmsu
sviðum réttarins.
4. Danskur fyrirlesari talaði um dagskrárefnið: Rekstrarform lögmanns-
skrifstofa. Fjallaði fyrirlesarinn um ýmis hugsanleg form rekstrarins og
ábyrgð lögmannsins í því sambandi. Leiddu umræður einkum til þeirrar
niðurstöðu, að æskilegt væri að reka lögmannsskrifstofur í einhvers-
konar samstarfs- eða félagsformi, en þar væru ýmis Ijón á veginum,
einkum að því er varðar rekstur lögmannsstarfs í félagi með takmarkaða
ábyrgð. Einnig kom mjög til umræðu útibú lögmanna í öðrum löndum
og þau vandamál, sem við það rísa upp.
Fundur þessi fór hið bezta fram og var frábærri gestrisni Dana sungið
lof að verðleikum.
í lok fundarins bauð formaður LMFÍ til næsta fundar á íslandi sumarið
1975, og var um það rætt, að hann yrði á sama tíma og norrænt lögfræð-
ingamót, sem þá skal einnig haldið á islandi. p^H g_ páisson
Skúli Pálsson
31